Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Nýjar atvinnu Mac bækur

Apple tilkynnti í gær nýja árgerð af MacBook Pro fartölvulínunni sinni. Flest allt innvolsið er uppfært með hraðari og betri hlutum en það sem vekur mesta athygli er Thunderbolt. Thunderbolt er ný uppfinning frá Intel sem er tengi/snúru lausn þar sem hraðinn er margfalt meiri en í USB og Firewire snúrum. Annað sem má [...]

Hraðamælir á snjóbretti!

GPS gleraugu

Kanadíska gleraugnafyrirtækið Zeal Optics hefur í samvinnu við Recon Instruments kynnt til sögunnar gleraugu með innbyggðu GPS tæki. Gleraugun eru fyrst og fremst hönnuð fyrir snjóbretta- og skíðafólk en líklega verður boðið uppá útgáfur fyrir aðrar íþróttagreinar og áhugamál, eins og endúró og motocross, innan skamms. Í gleraugunum er sem sagt venjulegt GPS tæki og svo lítill skjár neðst í þeim. Mjög auðvelt að líta niður á skjáinn og má segja að einföldustu upplýsingar, eins og hraði, sjáist alltaf svipað og í “heads up display” í orrustuþotum og dýrum bílum.

Á tækinu eru 3 takkar við gagnaugað þar sem flett er á milli mynda sem í boði eru. Hægt er að fylgjast með hraða, hæð, vegalengd, staðsetningu, hitastigi og tíma á auðveldan máta. Þegar ferðalaginu er lokið eru gleraugun tengd við tölvu með USB snúru og hægt að skoða túrinn myndrænt.

Skjárinn er nógu stór fyrir helstu upplýsingar

Smellið hér fyrir video og frekari upplýsingar
Lesa meira af Hraðamælir á snjóbretti!

Brúin til umhverfisvænni framtíðar

Vindmyllurnar eru undir veginum

Efnt var til samkeppni um að byggja umhverfisvæna brú milli Bagnara og Scilla á Ítalíu fyrir skemmstu. Sú hugmynd sem endaði í öðru sæti í samkeppninni gæti verið sú sem breytir heiminum. Allavega aðeins. Þessi snilldar hugmynd kemur frá Ítölskum hönnuðum að samnýta burðarvirki brúarinnar í eitthvað nytsamlegt er líklega hægt að nota á mörgum stöðum í heiminum með tiltölulega litlum tilkostnaði. Í þessari hugmynd er gengið enn lengra en með þessar vindmyllur þ.e. vegurinn sjálfur er úr sólarsellum og lítil sölutorg eru uppá brúnni. Kannski er það of mikið af því góða.

Vindmyllurnar eru undir veginum

Lesa meira af Brúin til umhverfisvænni framtíðar

Breitling með brilliant úr

Breitling Montbrilliant 01 Limited

Nýja úrið frá Breitling heitir Montbrilliant og er brilliant. Það eru aðeins 2000 eintök framleidd af úrinu í ryðfrírri útgáfu og önnur 200 eintök úr rauðagulli. Öll úrin eru númerið og koma með nýju gangverki sem heitir Caliber 01. Annars segir myndin meira en mörg orð.

Breitling Montbrilliant 01 [...]

Í hvernig skapi ertu?

:)

Sumir hafa mikla þörf fyrir að tjá sig brosköllum og öðrum skapgerðarmerkjum. Hér er tækið fyrir þá:

Ferrari 4

Fyrsta myndin af 4

Fyrsta myndin af 4

Ferrari hefur boðað komu fyrsta fjórhjóladrifs bíls þeirra. Bíllinn hefur einnig fjögur sæti. Hann gengur undir nafninu FF (Ferrari fjórir).

Bíllinn kemur til með að leysa af hólmi flaggskip verksmiðjunnar, 612 Scaglietti, og mun verða kynntur formlega á bílasýningunni í Genf.

4 er hnúfubakur (hatchback) með 6,3 lítra V12 [...]

Blaðsíða 3 af 4212345...102030...Síðasta »