Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Tveggja korta kínverskur sími

Fyrir þá sem þurfa að vera með tvö símkort geta nú sameinað símtækin.  Síminn kemur frá Kína og heitir Doubao 728.

Það magnaða við þetta er að það er hægt að tala á tveimur línum í einu, þ.e. við bæði símkortin í einu. Skjárinn er QVGA 2,2″ og með snertiskjá. Hann kostar bara 12 [...]

Evruumræðan komin á skrið

Nú þegar allir halda að evru-umræðan muni bjarga landinu frá gjaldþroti (allavega stjórnarandstaðan heldur það) þá er gott aðeins að setjast niður og hugsa málið. Hvar er betra að setjast en á klósettið.

Hugsið.

Reykskynjari framtíðarinnar

Litlu atriðin í lífinu geta verið pirrandi. Að skipta um batterí í reykskynjara getur skapað rifrildi og fleiri leiðindi í fjölskyldulífinu. Dupont í Bandaríkjunum hefur fundið lausnina, reykskynjari sem notar rafmagnið í húsinu til að hlaða sig sjálfur. Alltaf þegar þú kveikir ljósið hleður hann sig og það dugar batteríið í 30 daga nema [...]

31 megapixel, ég endurtek 31

Hágæða myndavélaframleiðandinn Hasselblad hefur kynnt til sögunnar H3D-31 sem er 31 (þrjátíu og eins) megapixla myndavél. Myndflagan er 44×33 millimetra, ISO 800 og nær hún 1,2 myndum á sekúndu. Vélin kostar sem svarar um 1,8 milljónum króna í Bandaríkjunum. Þessi er líklega ekki hentug fyrir byrjendur…

hasselbled

Fréttatilkynning frá Hasselblad er hér fyrir neðan

Lesa meira af 31 megapixel, ég endurtek 31

Flott úr frá Swatch

Swatch úraframleiðandinn frá Sviss var nýjungagjarn og flottur á síðasta áratug hefur komið fram með nýtt úr. Úrið er með LCD skjá sem er boginn, þ.e. úrið sjálft er eins og slanga úr reiðhjóladekki og les maður tímann af litlum LCD skjá sem er líka sívalur.

PS3 kemur 23.mars

Sony hefur lift hulunni af PS3 vélinni í Evrópu. Hún mun koma út 23.mars sem er nokkuð fyrr en sumir héldu. Það verða aðeins 1 milljón véla í boði fyrir alla álfuna og verða þær allar með 60GB hörðum diski (til minni í USA). Tölvan mun kosta 58.000 kall í Bretlandi, 54.000 á sumum öðrum stöðum, þannig að miðað við vsk-inn á Íslandi mun hún líklega kosta um 60 grönd !!!!.

ps3

Listi yfir leiki er hér fyrir neðan:

Lesa meira af PS3 kemur 23.mars

Blaðsíða 29 af 42« Fyrsta...1020...2728293031...40...Síðasta »