Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Er Google að koma með síma á markað?

Tölvurisinn Google hefur lengi verið grunaður um að vera með síma í þróun. Bensíni var helt á eld sögusagna um þetta þegar tævansk tækniblogg sagði að verið væri að framleiða prufueintök þar í landi. Þeir segja að síminn komi á markað í lok þessa árs og verði kominn útum allan heim á árinu 2008. [...]

Blackberry 8700v prófaður

Hlutir.is fengu um daginn Blackberry Pearl 8700v til prófunar. Tækið var prófað með ” BlackBerry Internet Service (BIS) sem er fyrir einstaklinga, einyrkja og minni fyrirtæki sem reka ekki eigin póstþjón, hafa fáa notendur eða þurfa einfaldlega ekki annað.
BIS veitir aðgang að tölvupósti, tengiliðalista, dagbók, aðgerðarlista og verkefnalista. Tölvupóstur berst í tækið á 15 mínútna fresti og símtækið lætur þig vita ef nýr póstur er í hólfinu með rauðu ljósi.” eins og segir á heimasíðu Vodafone.

Síminn sjálfur

8700Síminn er 110mm x 69,5mm x 19,5mm og vegur um 134gr. Innbyggt minni er 64mb og er hann með Li-Ion batteríi. í honum er Quad band, GPRS, EDGE, Bluetooth, USB tengi, MMS, Java, Vafri, Fjöltóna- og rauntónahringing.

Uppsetning:

Ágætlega gekk að setja upp símann, við settum upp tölvupóstinn í versluninni áður en hann var afhentur og virkar hann ágætega. Pósturinn er sóttur á 15 mínútna fresti og hægt er að stilla hvort það komi hljóð, víbringur eða ljós þegar nýr póstur kemur.
Þemað á valmyndum (theme) var nokkuð flatt og leiðinlegt í upphafi þannig að valið var að nota BB-Dimenson-icon sem var talsvert flottara.

Síminn er hlaðinn með hleðslutæki sem er stungið í USB raufina. Einnig hleðst hann þegar verið er að synca með USB snúrunni. Batteríið dugar í 4-6 daga.
Lesa meira af Blackberry 8700v prófaður

Sony með örþunna fartölvu

Sony er hugsanlega að komast á gott skrið. Þeir eru búnir að kynna tölvu með SSD disk og kynntu í gær alvöru videocameru með svipaðri tækni. Tölvan nýja heitir Sony VAIO G1 og er nú hægt að fá með 32 GB SSD disk sem gerir tölvuna að léttustu 12.1″ fartölvu í heimi. Aðeins 850 [...]

Sony kynnir nýja spólulausa myndavél

Sony hefur gefið út upplýsingar um nýja videomyndavél sem er ætluð fyrir áhugamenn sem setja miklar kröfur (prosumer). Þetta er spólulaus MPEG-2 myndavél sem tekur myndir á 3 stykki af 1,1cm flögum. Myndirnar eru settar á tvo 16GB SxS flash Express kort þannig að hægt er að ná 120 mínútum af háskerpu efni. Hægt er að velja á milli 1080/60i og 720/60p.

Ekki eru enn komið verð á gripinn en áætlað er að hún verði sett á markað seinna á árinu 2007.

sonyvideovel

Lesa meira af Sony kynnir nýja spólulausa myndavél

Einnota videocamera

Einstaklega falleg og lítil  þessi videoamera virkar þannig að þegar þú ert búin að taka upp það myndskeið sem þú villt eiga

ferðu einfaldlega með þetta í vissa verslaun og lætur þá fá myndavélina og svo stuttu síðar færðu myndskeiðið á dvd disk

og þú gengur ánægð/ur út með þetta brot af lífinu þínu [...]

100 milljón iPod seldir

Apple tilkynnti í dag að þeir seldu 100 milljónasta iPodinn í dag. Sagan spannar 5 og hálft ár en fyrsti iPodinn kom í búðir í nóvember 2001. 5 kynslóðir að baki og árangurinn gríðarlegur. Steve Jobs, forstjóri Apple, þakkaði fyrir sig í dag og sagði að iPod hafi breytt tónlistarheiminum, bæði hvað varðar hlustun [...]

Blaðsíða 19 af 42« Fyrsta...10...1718192021...3040...Síðasta »