Hvað getur maður sagt annað en vá.
Hvað getur maður sagt annað en vá.
Hverjum datt í hug að maður þyrfti snjóboltavél til að gera snjóbolta? Líklega einhverjum sem á ekki vettlinga. Þessi snilldargræja er til sölu á netinu og heitir Sno-Baller. Kostar reyndar bara $9 en líklega eru snjóboltarnir sem hún framleiðir ekki eins fullkomnir og þessi á myndinnni sem fyglir með. [...] Þessi glæsilegi sófi er hannaður fyrir 6 helstu hvíldarstellingar mannslíkamans. Þetta er tær snilld. Því miður er hann enn á hönnunarstigi en væntanlega fer hann í framleiðslu fljótlega. Ef þér finnst ekki smart að ganga um með handfrjálsan búnað á eyranu allan daginn þá er þetta kannski lausn fyrir þig. Armbandið einfaldlega víbrar þegar einhver hringir í þig eða þú færð SMS eða email. Hver hleðsla dugar í 100 klst og passar tækið við flesta Bluetooth síma. Tækið kostar um 3000 kall (+ skattar) og [...] Nú er flatt í tísku (í sumum skilningi) þannig að framleiðendur eru farnir að hugsa útfyrir imbakassann. Flatir hátalarar eru sjálfsögð þróun á eftir sjónvörpunum. Þessir nýju hátalarar eru 2.5 cm á þykkt en á stærð við skilrúm og henta vel í sjónvarpsherbergið hengdir á vegg. Hátalarnir heita Podium 1 og kostar parið $8.000 eða um [...] Ford bílaverksmiðjan í USA hefur sett 20 blendinga í prófun í Kaliforníu. Þetta er ekkert splunkuný hugmynd en þeir eru með þeim fyrstu að hrinda henni í framkvæmd. Bílinn er sem sagt bæði hægt að hlaða með bæjarrafmagninu og svo keyrir hann eins og venjulegur blendingur á bensín og rafmagni. Bíllinn er jepplingur sem kallast Escape og keyrir hann fyrstu 50 km á þess að bensínmótorinn fari í gang, eftir það hleður bensínmótorinn rafmótorana og skiptir bíllinn á að nota þá. Með þessu á að verða hægt að ná mjög lágri bensíneyðslu. Einnig myndi þetta henta einkar vel á Íslandi þar sem oftast eru keyrðar stuttar vegalengdir og rafmagnið er tiltölulega umhverfisvænt. | ||
90 fyrirspurnir. 0.566 sekúndur. | ||
Síðustu komment