Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

F-línan frá Mercedes-Benz

Í tilefni af 125 ára afmæli bílsins kynnti Mercedes-Benz til sögunnar framtíðarbílinn F125. Bíllinn er óvanalegur blendingur en hann er knúinn af vetni og rafmagni og kemst 1000 km á hverri hleðslu.
Notast er við koltrefjar, ál og sérstyrkt stál sem gerir bílinn léttan og eyðslugrannan. Einnig eru rafgeymarnir léttir en þeir eru úr nýju og léttara efni en áður hefur verið notað í bíla, lithium sulphur.
Þrátt fyrir að vera blendingur er þetta enginn letingi. Það tekur aðeins 4,8 sekúndur að fara úr kyrrstöðu í 100 km/klst.
Svo er auðvitað leiðsögukerfið með þrívíddar snertiskjá.

 

Smelltu á Lesa meira til að fræðast um hvernig þú ert tengdur við Facebook þegar þú keyrir bílinn…

Lesa meira af F-línan frá Mercedes-Benz

Sjónauki frá Sony

Nýji kíkirinn

Nýji kíkirinn

Sony hefur tilkynnt að nýr sjónauki komi í búðir í nóvember. Þessi er með HD videoupptöku og 7,1mp myndavél.

Verður verður nærri $2000 sem verður líklega einhver hálf milljón hingaðkomið. Allavega verður auðveldara að fylgjast með nágrönnunum fiðrildunum núna.

Blóðsykurmælir tekur við tárum

Blóðsykurmælirinn

Blóðsykurmælirinn

Milljónir manna um allan heim þurfa að stinga sig oft á dag í puttann til að ná í blóðdropa. Ástæðan er sú að þeir sem eru með sykursýki þurfa að mæla blóðsykur og hingað til hefur það aðeins verið gert með blóðdropum. Hönnun stendur yfir á tæki sem mælir blóðsykur útfrá tárum. [...]

Morgunverðarskál fyrir bíladellukalla

Morgunaverðar? Sumir myndu nota hana allan daginn

Kókópöffsið myndi renna ljúklega niður uppúr svona morgunverðarskál.

Morgunaverðar? Sumir myndu nota hana allan daginn

kaupa

Svölustu heyrnatól í heimi

Með byssukúlur í eyrunum!

Það er varla hægt að hugsa sér svalari heyrnatól. Þau eru gerð úr 18 karata gulli og líta út sem 9mm skothylki. Þau eru ekki bara ótrúlega flott heldur er víst hljómurinn í þeim alveg frábær.

Snúran er úr kevlar og er hljóðnemi á henni. 3,5mm tengið er húðað með 24k gulli.

Útrásarvíkingaviskí

Leifur Eiríksson hefði líklega viljað hafa eina svona sér við hlið

Leifur Eiríksson hefði líklega viljað hafa eina svona sér við hlið

Fyrsti og eini útrásarvíkingurinn okkar hefur fengið sitt eigin viskí. Leifur Eiríksson er auðvitað okkar fyrsti útrásarvíkingur og án efa sá merkilegasti. Það verður að teljast nokkur heiður á fá fésið á sér á svona eðaldrykk en það versta er að það [...]

Blaðsíða 1 af 4212345...102030...Síðasta »