Draumafleyið (Boeing 787 – Dreamliner) tók á loft í fyrsta skiptið í dag. Vélin er einhvert stærsta verkefni Boeing síðustu ára og bindur fyrirtækið miklar vonir við vinsældir vélarinnar. Vélin er byggð samkvæmt nýjustu tækni, er léttari, kraftmeiri og sparneytnari en eldri vélar og mun fljúga hraðar og hærra.

Draumafleyið tekur á loft í fyrsta skipti
Boeing áætlar að vélin verði komin í fullan rekstur eftir um það bil eitt ár en þangað til verða gerðar ítarlegar prófanir, stillingar og tilraunir með vélina. Líklega mun Boeing nota Keflavíkurflugvöll til prófana á hliðarvindslendingum og flugtökum eins og áður. Vélin mun einnig verða prófuð í eyðimörkum og frostasvæðum til að sjá hvar mörkin liggja.
Myndirnar sem fylgja hér eru skjáskot frá beinni útsendingu á heimasíðu Boeing sem sýndi frá öllu fluginu sem stóð yfir í 4 klst.
Lesa meira af Draumafleyið tekur á loft
Síðustu komment