Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Uppseldur á 92 sekúndum

Er það heimsmet? Að selja alla bílana sem á að framleiða á 92 sek. Það hlýtur að vera. Enda er bíllinn ekkert slor. Upphaflega er bíllinn BMW M6 blæjubíll en Neiman Marcus hefur aðeins frískað uppá gripinn. Lakkið á bílnum er sérstakt Rúbí-svart og hlutir í innréttingunni eru sprautaðir með Píanó svartri málningu. Sportsætin [...]

Honda þotan komin á loft

Þá er hin glæsilega Honda Þota komin á loft. Þotan er nýstárleg hönnun á einkaþotu í svokölluðum Very Light flokki. Þotan hefur sæti fyrir 6 farþega og dregur rétt rúma 2000 km (Reykjavík-London=1900km).

Að venju fer Honda ekki troðnar slóðir í hönnun á þotunni. Til að mynda eru mótorarnir ofan á vængjunum sem leiðir [...]

Hummer á 30

Þýski bílabætarinn GelgerCars hefur tekið Hummer H2 í gegn. Bíllinn var settur á 30″ felgur og Pirelli dekk. Vélin var skrúfuð uppí 556 hestöfl með keflablásara. Bíllin er nú 7.9 sek í hundrað og bremsudiskarnir eru 15″ með átta stimpla bremsudælum. Svo er líka DVD, TV og allskonar fleira dót.

[...]

Upplýsingar á framrúðuna

Hópur fjárfesta hefur sett 5 milljónir dollara í að hanna kerfi sem sýnir upplýsingar á framrúðunni í bílum.

Myndinni er varpað uppá neðri hluta framrúðunnar og gefur upplýsingar um hraða, eldsneyti, snúning vélarinnar, útvarpið osfrv. Markmiðið er að gera svipað og BMW hefur gert með iDrive en koma því uppá framrúðuna. Þannig á að [...]

4 dyra Porsche

Wendelin Wiedeking tilkynnti á dögunum að þeir hjá Porsche væri byrjaðir að prófa nýjan 4 dyra coupe í þessari viku. Bíllinn hefur verið kallaður Panamera og er líklegur til að vera kynntur formlega til sögunnar á bílasýningunni í Genf árið 2009.

P2

Eitthvað verður fengið að láni úr hönnuninn á 911 bílunum en samt eru veigamiklar breytingar þar á. Vélin er frammí. Reiknað er með 3 tegundum af vélum í upphafi. 300 hestafla 6 strokka vél frá Volswagen (3,5 L) og svo 2 átta strokka vélar úr Cayenne bílnum, þ.e. 350 hestafla og svo turobo vélin sem er 560 hestöfl.

Stóra spurningin er sú hvort Porsche nái aftur að þagga niður í efasemdaröddum sem þegar hafa hljómað. Þeir náðu því með Cayenne jeppann, en tilhugsunin um 4 dyra fjölskyldubíl frá Stuttgart er ekki alveg búin að ná hljómgrunni hjá manni…

Lesa meira af 4 dyra Porsche

Blaðsíða 8 af 8« Fyrsta...45678