Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Nýr Bentley

Þar sem miklar hækkanir hafa orðið á hlutabréfum uppá síðkastið er spurning hvort einhver hér á landi hafi efni á svona græju? Markhópurinn er reyndar aðallega kóngar, prinsar og olíufurstar en það er séns að einn eða tveir bílar verði seldir til almúgans þar sem alls 550 bílar verða framleiddir. Bentley Brooklands heitir hann og á hann ættir sínar að rekja til ársins 1920.

Vélin er sú kraftmesta sem Bentley hefur nokkurntíma framleitt. V8, 530 hestöfl og 1050 Nm tog ná þeir úr 6.75 lítra tveggja túrbínu vel tömdu villidýri.  Gírkassinn er 6 gíra.

Frágangur og hönnun eru sem fyrr aðalsmerki Bentley. Þessi Coupe bíll á að vera það sem þeir kalla heimsklassi.

8

Kannski er líklegra að maður sjái þennan bíl í rappmyndbandi á MTV heldur en í Kringlunni.

Lesa meira af Nýr Bentley

Benz sem eyðir 5,4 lítrum á hundraðið

Mercedes-Bens ætlar að frumsýna umhverfisvænan hugmyndabíl á bílasýningunni í Genf síðar í mánuðinum. Bíllinn er 170 hestöfl og togar 400 Nm og eyðslan er eins og fyrr segir um 5,4 lítrar á hundraðið. Bíllinn kallast Vision C 200 Bluetec.

Bíllinn stenst staðalinn EURO 6 sem tekur gildi árið 2015. Allir Diesel bílar frá Benz [...]

630 hestafla Porsche

Þar sem talsvert kapphlaup um flottasta Porsche-inn er í gangi í góðærinu um þessar mundir, er líklegt að einn svona sjáist á götum Reykjavíkur í sumar. Þetta er Porsche 911 Turbo (997 boddý) sem tjúnararnir hjá TechArt hafa dundað sér aðeins við. Bíllin er 680 hestöfl en var aðeins 480 frá verksmiðjunni. Togið hefur [...]

Arftaki NSX

Einn af öflugustu japönsku sportbílunum frá síðustu öld er Honda NSX. Þeir voru gríðarlega vinsælir um allan heim þó svo enginn hafi náð að komast á Klakann. Honda er með hugmyndabíl á teikniborðinu sem er eins konar arftaki NSX. Þó svo hugmyndin sé ólík (NSX var afturdrifinn með vélina í miðjunni og sá nýji [...]

KTM búnir að smíða fyrsta bílinn

Við sögðum frá því um daginn að austurríski sport-mótorhjólaframleiðandinn KTM væri með bíl á teikniborðinu. Nú, örfáum vikum síðar, er gripurinn kominn í prófanir og hér er ein mynd af honum…

Fleiri þríhjól

Stundum koma hlutirnir nokkrir í einu. Tvö önnur þríhjól hafa verið kynnt nú stuttu eftir að hjólið hér á undan hjól var kynnt. Þetta eru hjólin Silence PT2 og VentureOne.

Þau eru kannski með aðra hugsun að leiðarljósi. Þau eru bæði “umhverfisvæn”.

Silence PT2 er þriggja hjóla rafmagnsfarartæki. Reyndar nokkuð flott græja, með háglansandi [...]

Blaðsíða 5 af 8« Fyrsta...34567...Síðasta »