Á þessum síðustu og bestu tímum er orðið nokkuð erfitt að finna bílastæði. Benz er kominn með skemmtilega lausn á þessu vandamáli. Þú bara leggur aðeins fyrir utan mestu bílastæðavandræðasvæðin (flott orð) og hjólar restina af leiðinni.
Þetta er ekki fyrsta hjólið sem Mercedes-Benz framleiðir en þetta er það handhægasta og þarf aðeins 2 handtök til að opna eða leggja það saman. Einnig á þetta að vera hreinlegt þar sem hjólið er sérstaklega hannað til að smita ekki olíu puttana.
Stærðin er bara 800x800x220 mm samanbrotið. Svo smellpassar það í skottið á CLK blæjubíl og líklega fleiri útgáfum síðar. Þetta er rétta leiðin til að skoða sig um, umhverfisvænt og skemmtilegt.





Síðustu komment