Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Pimpaður Range Rover

iPad með þráðlausu lyklaborði

Þó að þessi Range Rover hafi aðeins verið tekinn í gegn er þetta engin “MTV Pimp my ride” útgáfa. Þetta er alvöru. Þessi hefði örugglega selst í 100 eintökum á Íslandi árið 2007.
Þessi útgáfa kallast Range Rover Autobiography Ultimate Edition og má segja að þetta líkist frekar einkaþotu en bíl. Til að nefna eitthvað þá eru í bílnum 4 körfustólar, 2 iPaddar og kælir á milli aftursætanna.

Bíllinn verður frumsýndur á bílasýningunni í Genf í næsta mánuði. Verðið er ekki komið á hreint.

iPad með þráðlausu lyklaborði

Lesa meira af Pimpaður Range Rover

Ferrari 4

Fyrsta myndin af 4

Fyrsta myndin af 4

Ferrari hefur boðað komu fyrsta fjórhjóladrifs bíls þeirra. Bíllinn hefur einnig fjögur sæti. Hann gengur undir nafninu FF (Ferrari fjórir).

Bíllinn kemur til með að leysa af hólmi flaggskip verksmiðjunnar, 612 Scaglietti, og mun verða kynntur formlega á bílasýningunni í Genf.

4 er hnúfubakur (hatchback) með 6,3 lítra V12 [...]

Lúxuskerra frá Maybach

Það væri ágætt að rúlla um á þessum

Ef þið hélduð að Mercedes-Benz væri lúxuslínan frá Daimler fyrirtækinu þá er það misskilningur. Toppurinn á ísjakanum hjá þeim heitir Maybach er fyrir þá allra ríkustu.  Alls eru 5 tegundir í boði frá þeim og heildarsalan er innan við 200 bíla á ári. Samkeppnin við Rolls Royce og Bentley er hörð og lísti fyrirtækið [...]

Svalur hjálmur

Sportlegur

Einn svalasti mótorhjólakappi síðustu aldar var Steve McQueen. Hann var reyndar frægur sem kvikmyndaleikari en keppti í motocrossi og enduro þrátt fyrir að samningur hans við kvikmyndaverið bannaði það (hann skráði sig í keppnir undir dulnefni).

McQueen notaði TAG Hauer Monaco úr þegar hann lék í kvikmyndinni Le Mans og hefur það úr verið [...]

Keyrðu með símann í stýrinu

Klemman góða

Flottustu bílaframleiðendur í heimi hafa verið að rembast við að setja upplýsingar inní framrúðuna svo ökumenn þurfi ekki að taka augun af veginum. Nú er hægt að fá þess klemmu fyrir lítið fé. Hún kemur kannski ekki í veg fyrir það að ökumenn taki augun af veginum en er sniðugt engu að síður þar sem flest GPS tæki eru hvort sem er til hliðar við sjónlínuna. Allavega er þetta ekki verri uppfinning en margar af þeim þúsundum farsíma aukahluta sem eru á markaðnum. Þetta virkar fyrir iPhone og Android síma sem og fleiri.

Klemman komin í stýrið

Lesa meira af Keyrðu með símann í stýrinu

Ágætis jepplingur

Rennilegur þessi

Andreas Schwarz er ný tekinn við sem forstjóri hjá Gemballa fyrirtækinu í Þýskalandi. Fyrrum forstjóri fannst látinn fyrir skemmstu í Suður-Afríku og þykir nokkuð ljóst að mafían þar í landi hafi eitthvað skítugt í pokahorninu.

Fyrsti bíllinn sem Andreas sendir frá sér kalla þeir Tornado og er byggður á 2011 árgerðinni af Porsche Cayenne. Boddíið er heimasmíðað úr koltrefjablöndu og er um 70 kg léttara en það venjulega. Svo eru 700 hestar í hesthúsinu og fullt af sniðugu dóti einnig.

Rennilegur þessi

Aðeins 30 eintök verða smíðuð þannig að það borgar sig að vera fljótur að panta.

Lesa meira af Ágætis jepplingur

Blaðsíða 2 af 812345...Síðasta »