Í tilefni af 125 ára afmæli bílsins kynnti Mercedes-Benz til sögunnar framtíðarbílinn F125. Bíllinn er óvanalegur blendingur en hann er knúinn af vetni og rafmagni og kemst 1000 km á hverri hleðslu.
Notast er við koltrefjar, ál og sérstyrkt stál sem gerir bílinn léttan og eyðslugrannan. Einnig eru rafgeymarnir léttir en þeir eru úr nýju og léttara efni en áður hefur verið notað í bíla, lithium sulphur.
Þrátt fyrir að vera blendingur er þetta enginn letingi. Það tekur aðeins 4,8 sekúndur að fara úr kyrrstöðu í 100 km/klst.
Svo er auðvitað leiðsögukerfið með þrívíddar snertiskjá.
Smelltu á Lesa meira til að fræðast um hvernig þú ert tengdur við Facebook þegar þú keyrir bílinn…









Síðustu komment