
Andreas Schwarz er ný tekinn við sem forstjóri hjá Gemballa fyrirtækinu í Þýskalandi. Fyrrum forstjóri fannst látinn fyrir skemmstu í Suður-Afríku og þykir nokkuð ljóst að mafían þar í landi hafi eitthvað skítugt í pokahorninu.
Fyrsti bíllinn sem Andreas sendir frá sér kalla þeir Tornado og er byggður á 2011 árgerðinni af Porsche Cayenne. Boddíið er heimasmíðað úr koltrefjablöndu og er um 70 kg léttara en það venjulega. Svo eru 700 hestar í hesthúsinu og fullt af sniðugu dóti einnig.

Rennilegur þessi
Aðeins 30 eintök verða smíðuð þannig að það borgar sig að vera fljótur að panta.

