Nú er loksins kominn á markað raunverulegur kostur við að fá sér alvöru spilakassa inní stofu. Kassinn er hannaður og smíðaður af Pinel & Pinel og fæst í 51 lit. Í kassanum eru 60 leikir og margir af þeim bestu frá því á níunda áratugnum svo sem PacMan, 1942 og Space Invaders.
Skjárinn er 1080p LCD og hágæða 400w hljómkerfi með bassaboxi er í kassanum sem er leðurklæddur. Kassinn er einnig hleðslustöð fyrir iPhone en flottast væri en hægt væri að spila leikina úr honum, en svo virðist ekki vera.
Verðið byrjar í 1,5 milljón íslenskar kr. og hægt er að fara með það uppúr öllu valdi með því að sérpanta t.d. liti.

Nokkrir af þeim litum sem eru í boði

Síðustu komment