Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Hjálmur sem líkir eftir hárgreiðslunni þinni

motorcycle-helmet-funnies

Hver vildi ekki vera með greiðsluna alltaf beinstífa á krúsinu? Hér er eitthvað sem gæti fengið einn eða tvo ökumenn til að líta við (og kannski keyra á næsta ljósastraur)

reyndar er hægt að fá nokkrar aðrar útgáfur heldur en bara hárgreiðslur… smellið á linkinn hér fyrir fleiri myndir

Lesa meira af Hjálmur sem líkir eftir hárgreiðslunni þinni

Límband með húmor

Límband

Þegar Sýslumaðurinn kemur og rekur þig útúr íbúðinni er gott að vera búinn að kaupa svona límband fyrir alla pappakassana

Límband

Lesa meira af Límband með húmor

Spilakassi í stofuna heima

500x_pinel___pinel_arcade_trunk

Nú er loksins kominn á markað raunverulegur kostur við að fá sér alvöru spilakassa inní stofu. Kassinn er hannaður og smíðaður af Pinel & Pinel og fæst í 51 lit. Í kassanum eru 60 leikir og margir af þeim bestu frá því á níunda áratugnum svo sem PacMan, 1942 og Space Invaders.

Skjárinn er [...]

Svaaaaaka úr

MB&F

Nú er rétti tíminn til að fjárfesta í framúrstefnulegu úri.

Úrið heitir  Horological Machine No4 Thunderbolt watch og er framleitt af MB&F. Það er handsmíðað úr títan og safír og tekur rúmlega 100 klukkustudir að búa til botninn í því.

Aðeins 20 úr verða framleidd í ár þannig að nú þarf að hlaupa til. Það kostar 21 milljón íslenskar krónur fyrir utan virðisaukaskatt.

Þessu úri verður annars ekkert líst með orðum og því best að skoða nokkrar myndir og video.

MB&F

Lesa meira af Svaaaaaka úr

Láshjól

Hjólið vafið um staurinn

Þetta er sniðug uppfinning í kreppunni, nú þegar nánast öllu er stolið. Reiðhjól sem þarf engan lás, því hjólið er lás. Hjólið er ekki komið í framleiðslu ennþá en hinn 21 árs uppfinningarmaður, Kevin Scott, hjólar alsæll um á frumgerðinni (sjá mynd).

Þá þarf bara að fjölga aðeins ljósastaurunum í borginni svo allir fái stað til að leggja hjólinu sínu á.

Hjólið vafið um staurinn

Lesa meira af Láshjól

Flott borðtölva

HugmyndaMiðstöðin frá Lenovo

Lenovo ætlar að setja í almenna sölu nýja flotta tölvu seinna í mánuðinum. Hún ber nafnið IdeaCentre A310 og er bara nokkuð hugguleg.

Hún er nánast eins og fartölva með stóran skjá á súlu fyrir ofan og þráðlausu lyklaborði og mús. Inní henni er 2.26GHz dual Core og 45nm grafískt kort.

Mestu vonbrigðin svona [...]

Blaðsíða 1 af 212