Loksins er komið að því að OLED sjónvarp komi á markaðinn í Evrópu. LG setur þetta sjónvarp á markaðinn í Austurríki og fleiri Evrópulöndum í maí og svo í Bandaríkjunum í sumar. OLED tæknin gefur kost á því að hafa sjónvarpið aðeins 3 mm á þykkt og orkunotkunin er mjög lítil. Nú þegar LED sjónvörp eru farin að sjást í Evrópu í allt uppí 52″ og kosta ennþá talsvert meira en LCD sjónvörp má segja að þessi tækni sé næsta kynslóð á eftir LED. Sjónvörpin eru mjög dýr (ennþá) og eingöngu er fáanlegt þetta 15″ sjónvarp sem kostar um 2.000 Evrur eða nálægt 350 þúsund kalli.
Skerpan er 10.000.000:1 og svartíminn er 0.01ms


Síðustu komment