Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

4G prófað í Svíþjóð

4G pungurinn

Norræna símafyrirtækið Telia hefur sett upp 4G senda á völdum stöðum á Norðurlöndunum. Nú hafa verið gerðar prófanir af sænska tækniblaðinu M3 og niðurstöðurnar eru þær að loksins er hægt að kalla fyrirbærið “þráðlaust breiðband”. Takmarkið er að hraðinn verði 100Mbit/sek en enn sem komið er eru engir símar í almennri sölu fáanlegir með 4G og aðeins um 1000 módem verið framleidd.

Nú er kerfið bara komið upp í Stokkhólmi og Osló en til stendur að setja upp senda í 25 borgum í Svíþjóð fyrir árslok 2010 og kostnaðurinn á þessu ári er áætlaður um 8 milljarðar ISK.

Kerfið var prófað á venjulegri fartölvu í miðborg Stokkhólms bæði innanhúss og utan.

Heildareinkunnin er 7 af 10 en aðallega er það verðið og samhæfni við núverandi tölvur sem dregur einkunnina niður.

Niðurhal fer uppí 36Mbit/sek utanhúss en tæplega 30 innanhúss.

Comments are closed.