Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Porsche uppfærir græjurnar sínar

Porsche hefur gefið út myndir af 2011 árgerðunum af 911 og Cayenne. Cayenne jeppinn er mest selda tegundin hjá framleiðandanum og er nú útlitið tekið í gegn. Óhætt er að segja að það sé vel lukkað. Einnig er fréttnæmt þar eru nýjar vélar. Annarsvegar diesel vél og hinsvegar blendingur sem bensín og rafmótorum. Aðrar vélar eru eyðslugrennri en þær voru og Turbo S bíllinn er nú 500 hestöfl. Blendingurinn er með V6 mótor og samtals 333 hestöfl

Nýr Cayenne

911 bílarnir hafa einnig verið uppfærðir nú er 911 Turbo S bíllinn orðinn 530 hestöfl og togið er 516 lb-ft (sem er vangefið mikið). Bíllinn er nú 3,3 sek í hundrað og 10,8 sek í 200. Hámarkshraðinn er 312 km/klst.

Nýr 911

Comments are closed.