Apple kynnti í gær nýja tegund af tölvu sem þeir telja að eigi eftir að breyta því hvernig við njótum internetsins. Tölvan kallast iPad og er örþunn og öflug. Hún er með u.þ.b. 10 tommu snertiskjá (24,6 cm) og 10 klst líftíma batterís. Notendaviðmótið er líkt því sem þekkist frá iPhone og iPod touch en þó verður stærri skjárinn nýttur betur t.d. í póstforritinu Mail og stuðningi við iWork skrifstofuforritin. Apple mun einnig kynna iBooks bókabúðina í iTunes og keppa þar við hið svarthvíta Kindle frá Amazon.
Boðið verður uppá 3 stærðir á hörðum disk, 16,32 og 64 GB og allar tölvur verða með 802.11 N WiFi en hægt verður að fá þær einnig með 3G tengingu við netið.
Tækið verður með lyklaborði á skjánum en einnig verður hægt að tengja venjuleg lyklaborð við það í gegnum Bluetooth. Ekki er stuðningur við Flash frekar en í iPhone og kom það mörgum á óvart. Apple segir hugbúnaðinn ekki nógu stöðugan og eyðslufrekan á örgjörva, einnig verði hann úreldur fljótt þegar HTML 5 staðallinn verður orðinn algengari.
Ljóst er að leikjaæðið sem iPhone hefur komið af stað er rétt að byrja. Leikjaupplifunin verður enn magnaðari með þessari græju. Einnig verða margir sem eiga eftir að upplifa bíómyndir, sjónvarpsþætti, ljósmyndir, vefi og margt annað á nýjan og magnaðan máta.


Nýlegar athugasemdir