Bang og Olufsen hefur sett á markað 103 tommu plasma sjóvarp í DeoVision 4 línunni sinni, þar sem áður voru bara 50 og 65tommu sjónvörp. Þetta er ekki amalegt sjónvarp enda með öllu því flottasta sem B&O hefur uppá að bjóða. Tækið er auðvitað í fullri HD upplausn, með sjálfvirkri stillingu á litum og birtu (VisionClear), standi sem tjakkar sig upp sjálfkrafa og ýmislegt annað. Líklegt þykir að hönnunarferlið á þessu skrímsli hafi verið samþykkt þegar Hannes Smárason átti 15% hlut í félaginu og ætlaði að gera það að heimsveldi.
Verðið er aðeins um 20 milljónir króna en fyrir þá upphæð mætti t.d. kaupa
- 2 herbergja íbúð í Breiðholtinu
- 1 kíló af kókaíni
- 7 ágætis bifreiðar að eigin vali

Fyrir neðan er svo smá myndband frá B&O um nýja gripinn.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=b5XQkfaUAuU&[/youtube]