Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Vetnisbíll frá Benz kominn á göturnar

Benz verksmiðjurnar voru að prufukeyra þennan vetnisknúna A-Benz í vikunni í Kaliforníu. Ekki margir vetnisbílar hafa sést á götunum þrátt fyrir ýmsar yfirlýsingar og draumóra. F-Cell kallast mótorinn er er í raun fyrsta kynslóð mótora frá Benz sem komast fyrir í fólksbíl.

Vetnistankurinn er 5000psi sem fæðir brunarými sem framleiðir rafmagn. Rafmagnið er svo notað til að knýja 87 hestafla rafmagnsmótor.

Óopinberar tölur frá Benz segja að þeir séu komnir yfir 1,5 milljón ekna kílómetra á vetnisfólksbílum.
Fcell

Þessi tilraunabíll hefur drægni uppá 200 kílómetra sem ætti að vera nægilegt fyrir venjulega notkun. Einnig er Benz með bíla í prófun í B-seríunni og þar er tankurinn að halda 10.000psi af vetni með þróaðari efnisvali í tankinum. Rafmótorinn í B-seríunni er 136 hestöfl og 215 pund-fet af togi.

Er þetta ekki rétti tíminn fyrir Íslendinga að halda áfram að taka þátt í svona verkefnum? Gera okkur óháða innflutningi á orku í landi sem á nóg af orku þó hún sé í öðru formi?

Fcell2

Comments are closed.