Zune er tónlistarspilari frá Microsoft sem átti að keppa á móti iPod. Það hefur nú ekki gengið vel hingað til en enn reyna þeir, því nóg eiga þeir af peningum til að ausa í þetta. Þessi mynd er líklega af nýjasta afbrigðinu, sem sagt eftirhermu af iPod touch. Nánari upplýsingar eru ekki komnar í ljós en líklegt er að báðir Zune eigendurnir séu spenntir fyrir uppfærslu.


Nýlegar athugasemdir