Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Vetnisbíll frá Benz kominn á göturnar

Benz verksmiðjurnar voru að prufukeyra þennan vetnisknúna A-Benz í vikunni í Kaliforníu. Ekki margir vetnisbílar hafa sést á götunum þrátt fyrir ýmsar yfirlýsingar og draumóra. F-Cell kallast mótorinn er er í raun fyrsta kynslóð mótora frá Benz sem komast fyrir í fólksbíl.

Vetnistankurinn er 5000psi sem fæðir brunarými sem framleiðir rafmagn. Rafmagnið er svo notað til að knýja 87 hestafla rafmagnsmótor.

Óopinberar tölur frá Benz segja að þeir séu komnir yfir 1,5 milljón ekna kílómetra á vetnisfólksbílum.
Fcell

Lesa meira af Vetnisbíll frá Benz kominn á göturnar

Golfboltavélmenni

Jú, það er komið golfboltavélmenni á markaðinn. Nafnið er RoboCup. Þetta er möst fyrir golfarann, allavega þessa fáu sem nenna að æfa sig. Græjan kostar ekki nema $50 og gengur nánast endalaust á nokkrum batteríum. Tilvalið til að nota einu sinni og setja svo í geymsluna.

Smellið til að sjá video sem sýnir [...]

Man einhver eftir ZUNE?

Zune er tónlistarspilari frá Microsoft sem átti að keppa á móti iPod. Það hefur nú ekki gengið vel hingað til en enn reyna þeir, því nóg eiga þeir af peningum til að ausa í þetta. Þessi mynd er líklega af nýjasta afbrigðinu, sem sagt eftirhermu af iPod touch. Nánari upplýsingar eru ekki komnar í [...]