Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

BMW hannar tölvu

BMW DesignworksUSA er sjálfstætt dótturfélag bæverska bílaframleiðandans BMW. Fyrirtækið hefur hannað snekkjur, lestar, kaffikönnur, hátalara og nú bætist þessi forláta tölvukassi í hópinn. Kassinn var hannaður í samvinnu við Thermaltake og ber vott um nokkuð frumstæða og skemmtilega hugsun. Allir hlutar kassans eru sjálfstæðir þannig í raun og veru er þetta grind frekar en [...]

Lambo handa frúnni

 

Lambo skór

Ef að konan skyldi hafa beðið um Lamborghini í afmælisgjöf og þú hefur tapað nokkrum kúlum í bankahruninu, gætu þessir skór komið sér vel. Reyndar er þetta svona fyndið í 2 mínútur en það myndi engin heilbrigð kona láta sjá sig í þessum skóm á almannafæri. Verðið er líklega aðeins [...]

Ný eyrnatæki frá Sony

Sony hefur sett á markað ný hágæða eyrnatæki (headphones). Þau eru úr málmi og eiga þess vegna að víbra minna en ódýrari efni og þess vegna hljóma betur. Hátalarabotninn er 13,5mm. Hvert einasta eintak er svo stillt sérstaklega til að tryggja gæðin. Verð í USA: $130. Tækin heita  Sony EX-500LP.

[...]

Rómantískir vettlingar

 

Nú þegar veturinn er í hámarki er tilvalið að hugsa um jólagjöf fyrir næstu jól. Það eru svona rómantískir vettlingar sem gerir manni kleyft að fara í rómantískar göngutúr með elskunni sinni næsta vetur. Þeir eru úr flísefni og kosta bara $35 í [...]

Blaðsíða 2 af 212