Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Grill fyrir sumarið

imperial grill

Nú þegar 16 liða úrslitin í Meistaradeildinni eru búin er flesta karlmenn farið að hlakka til að taka fram grillið fyrir 8 liða úrslitin. Jú, þetta gerist víst á vorin, lóan kemur og Liverpool vinnur einn bikar eða svo. 

Þetta tveggja hólfa skrímsli er tilvalið á svalirnar í vor. Afköstin eru um 60.000 BTU sem þykir talsvert. Verðið er um 300.000 íslenskar krónur í Ameríku en líklega kemst það í 20 feta gám ef þið ætlið að panta ykkur eitt. Rekstrarkostnaður á ári er líklega svipaður og verðið. Grillið heitir Imperial XL.

Kannski mun nágrönnunum þykja þetta svolítið “2007″ en hver hlustar á þá?

Comments are closed.