Klukka eða geimskip?

Þessi klukka er eitthvað það flottasta sem maður hefur séð lengi. Fréttatilkynningin frá framleiðandanum var stútfull af upplýsingum um hvað klukkan væri vel hönnuð úr góðum efnum og gríðarlega nákvæm. Það var svo mikið af flóknum tækniorðum og blaðri að það er best að láta myndirnar bara tala sínu máli. Njótið því myndanna eða smellið [...]

Frumleg hönnun hjá Lenovo

Lenovo er að undirbúa framleiðslu á þessari nýstárlegu fartölvu sem kalla mætti veskistölvu. Ekki eru þeir búnir að gefa út miklar upplýsingar um hana en myndirnar segja manni að þarna séu QWERTY lyklaborð og snertiskjár…. spennandi.

Tölvan hefur vinnuheitið Yoga.

 

Dell hermir eftir Apple (einu sinni enn)

Dell kallar hana Adamo 9 og er hún greinilega eftirherma af MacBook Air. Þeir hafa sleppt svörtu plastumgjörðinni og ódýru skrúfunm og ætla að leggja smá metnað í eftirhermuna í þetta skiptið. Endanleg útfærsla er ekki staðfest en líklega verður innbyggt 3G kort og GPS (!).

Loksins hægt að fá almennilegan síma!!!

Porsche Design hefur sent frá sér verulega flottan GSM síma. Þessi er skorinn útúr álklumpi og er með 2,8 tommu rispufríum OLED snertiskjá. Myndavélin er 5 megapixel og það er auðvitað GPS og Wi-Fi um borð. Einnig er fingrafaraskanni í honum til að enginn sé að fikta í græjunni þinni nema þú.

Gripurinn heitir Porsche Design [...]

Grill fyrir sumarið

Nú þegar 16 liða úrslitin í Meistaradeildinni eru búin er flesta karlmenn farið að hlakka til að taka fram grillið fyrir 8 liða úrslitin. Jú, þetta gerist víst á vorin, lóan kemur og Liverpool vinnur einn bikar eða svo. 

Þetta tveggja hólfa skrímsli er tilvalið á svalirnar í vor. Afköstin eru um 60.000 BTU sem þykir [...]

Fellihýsi eða kerra…. eða bæði?

Fyrirbærið er einhversstaðar mitt á milli þess að vera fellihýsi og kerra. Þetta er sem sagt fjölnotakerra sem ætti að henta vel fyrir meðalmótorhjólamanninn. Hægt er að draga 2 motocrosshjól eða 1 fjórhjól og svo smella upp tjaldinu og leggja sig fram að næsta moto-i. Einnig væri hægt að nota hana til að keyra heim [...]

Blaðsíða 1 af 212