Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Snjóboltagræja

Hverjum datt í hug að maður þyrfti snjóboltavél til að gera snjóbolta? Líklega einhverjum sem á ekki vettlinga.

Þessi snilldargræja er til sölu á netinu og heitir Sno-Baller. Kostar reyndar bara $9 en líklega eru snjóboltarnir sem hún framleiðir ekki eins fullkomnir og þessi á myndinnni sem fyglir með.

[...]

Sófi eins og hugur manns

Þessi glæsilegi sófi er hannaður fyrir 6 helstu hvíldarstellingar mannslíkamans. Þetta er tær snilld. Því miður er hann enn á hönnunarstigi en væntanlega fer hann í framleiðslu fljótlega.

Titrandi Bluetooth armband

Ef þér finnst ekki smart að ganga um með handfrjálsan búnað á eyranu allan daginn þá er þetta kannski lausn fyrir þig.

Armbandið einfaldlega víbrar þegar einhver hringir í þig eða þú færð SMS eða email. Hver hleðsla dugar í 100 klst og passar tækið við flesta Bluetooth síma.

Tækið kostar um 3000 kall (+ skattar) og [...]

Flathátalarar

Nú er flatt í tísku (í sumum skilningi) þannig að framleiðendur eru farnir að hugsa útfyrir imbakassann. Flatir hátalarar eru sjálfsögð þróun á eftir sjónvörpunum. Þessir nýju hátalarar eru 2.5 cm á þykkt en á stærð við skilrúm og henta vel í sjónvarpsherbergið hengdir á vegg.

Hátalarnir heita Podium 1 og kostar parið $8.000 eða um [...]

Ford með sniðugan blending

Ford bílaverksmiðjan í USA hefur sett 20 blendinga í prófun í Kaliforníu. Þetta er ekkert splunkuný hugmynd en þeir eru með þeim fyrstu að hrinda henni í framkvæmd. Bílinn er sem sagt bæði hægt að hlaða með bæjarrafmagninu og svo keyrir hann eins og venjulegur blendingur á bensín og rafmagni.

Bíllinn er jepplingur sem kallast Escape og keyrir hann fyrstu 50 km á þess að bensínmótorinn fari í gang, eftir það hleður bensínmótorinn rafmótorana og skiptir bíllinn á að nota þá. Með þessu á að verða hægt að ná mjög lágri bensíneyðslu. Einnig myndi þetta henta einkar vel á Íslandi þar sem oftast eru keyrðar stuttar vegalengdir og rafmagnið er tiltölulega umhverfisvænt.
ford2

Lesa meira af Ford með sniðugan blending

Öðruvísi baðherbergi

Ef mótorhjóladellan er að fara með þig eða þú vilt aðeins gefa fiskunum þínum smá spennu í tilveruna þá er þetta fyrir þig:

Blaðsíða 2 af 3123