Ford bílaverksmiðjan í USA hefur sett 20 blendinga í prófun í Kaliforníu. Þetta er ekkert splunkuný hugmynd en þeir eru með þeim fyrstu að hrinda henni í framkvæmd. Bílinn er sem sagt bæði hægt að hlaða með bæjarrafmagninu og svo keyrir hann eins og venjulegur blendingur á bensín og rafmagni.
Bíllinn er jepplingur sem kallast Escape og keyrir hann fyrstu 50 km á þess að bensínmótorinn fari í gang, eftir það hleður bensínmótorinn rafmótorana og skiptir bíllinn á að nota þá. Með þessu á að verða hægt að ná mjög lágri bensíneyðslu. Einnig myndi þetta henta einkar vel á Íslandi þar sem oftast eru keyrðar stuttar vegalengdir og rafmagnið er tiltölulega umhverfisvænt.





Síðustu komment