Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Risa Parísarhjól í Kína

Kínverjarnir ætla að setja eitt svakalegt met á næstunni. Þeir ætla ða byggja stærsta parísarhjól í heimi. og það er engin smásmíði. Núverandi methafi er Odaiba hjólið í Tokyo sem er 113 metrar á hæð og þykir sumum nóg. Nýja hjólið sem verður í Peking mun verða 204 metrar á hæð :)

Hjólið mun kosta um 6 milljarða íslenskra króna – 6.000.000.0000 krónur – og mun hafa 48 rólur ef rólur má kalla. Hver róla er í raun salur, því það komast 40 manns í hvern þeirra og er þar loftkæling meðal annars. Þannig að um 1920 manns eru í tækinu í einu.

Því miður ná Kínverjarnir ekki að klára hjólið fyrir Ólympíuleikana á næsta ári.
parisarhjol

Comments are closed.