Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Dell komnir með XPS One í verslanir

Dell hefur hafið sölu á XPS One í Bandaríkjunum. Tölvan er nokkuð lík hugmyndinni um iMac þ.e. tölvan og skjárinn eru eitt og sama stykkið. Tölvan er nokkuð dýrari en samsvarandi makki ef hægt sé að bera það saman. Tölvan er með 20″ skjá, 2GB DDR2 minni, öflugum Inter Core 2 Duo örgjörva (E6550), Bluetooth 2.0, 8 korta kortalesara, 802.11a/b/g/n WiFi, 256MB ATI Radeon HD 2400 PRO skjákort og 500GB SATA harður diskur. Svo er hægt að fá Blu-ray brennara, sjónvarpskort og fleira. Tölvan hlýtur að mæta til landsins fyrir jól.

Verðskráin hjá Dell í USA

xps5  

Fleiri myndir ….  

Risa Parísarhjól í Kína

Kínverjarnir ætla að setja eitt svakalegt met á næstunni. Þeir ætla ða byggja stærsta parísarhjól í heimi. og það er engin smásmíði. Núverandi methafi er Odaiba hjólið í Tokyo sem er 113 metrar á hæð og þykir sumum nóg. Nýja hjólið sem verður í Peking mun verða 204 metrar á hæð

Hjólið mun [...]

gSíminn staðfestur

Ameríska stórfyrirtækið Google hefur staðfest Google Símann og mun hann koma út innan árs. Hafa sögusagnir verið nokkuð lengi í gangi en nú hefur það verið staðfest. Ekki er víst að síminn muni heita Google Phone en hann verður með allsérstöku sniði. Hann verður byggður á Linux stýrikerfi og með Java og verður Open [...]

Yddari dauðans

Iðnhönnuðir geta átt sína dimmu daga eins og við hin.

Blaðsíða 2 af 212