Ameríska stórfyrirtækið Google hefur staðfest Google Símann og mun hann koma út innan árs. Hafa sögusagnir verið nokkuð lengi í gangi en nú hefur það verið staðfest. Ekki er víst að síminn muni heita Google Phone en hann verður með allsérstöku sniði. Hann verður byggður á Linux stýrikerfi og með Java og verður Open Source. Þannig munu ýmis fyrirtæki koma að hönnun símans þ.á.m. HTC, LG, Motorola og Samsung. Í Bandaríkjunum munu Sprint og T-Mobile selja SIM kort í hann og stefnt er að því að koma út um allan heim á sama tíma.
34 fyrirtæki koma að þróun símans og má þar nefna Nvidia með grafík og Skype með internet síma.
Hönnunarstaðlar verða tilbúnir fyrir forritara eftir viku.
Google verður með auglýsinga einkleyfi í símanum.

Ætli hann muni líta svona út?
Byggt á: CNN, USATODAY og New York Times

jarí jarí jarí. iPhone er málið !