Motorola ætlar sér stærri hluti í myndböndunum á MTV með þessum síma. Hann er með 18 og 24 karata gullhúð ásamt snákaskinni á bakhliðinni. Síminn er annars venjulegur RAZR2 en kallast nú V8 Luxury edition.

Motorola ætlar sér stærri hluti í myndböndunum á MTV með þessum síma. Hann er með 18 og 24 karata gullhúð ásamt snákaskinni á bakhliðinni. Síminn er annars venjulegur RAZR2 en kallast nú V8 Luxury edition.
Þessi nýji krani frá Miscea er snertifrír og einnig skammtar hann út sápu og sótthreinsandi snertifrítt. Svo stillir hann einnig hitastigið snertifrítt og hitamælir á miðjum krananum sýnir hversu heitt vatnið er sem úr honum kemur. Tilvalið í næsta heimili. ![]() iPhone var formlega kynntur til sögunnar í janúar síðastliðnum á Macworld sýningunni í San Fransisco eftir að hafa verið slúðrað um hann í 3 ár. Slúðrið hélt áfram og óhætt er að segja að yfirstaðin er einhver magnaðasta markaðssetning seinni ára. 270.000 stykki seldust fyrsta sólarhringinn í USA í lok júní og síminn er væntanlegur útfyrir Bandaríkin á næstu vikum. Við hjá Hlutir.is erum búnir að vera með iPhone í notkun núna í heila viku. Síminn var prófaður fram og til baka og til að gera langa sögu stutta þá er niðurstaðan: frábær græja. iPhone er gjörsamlega eins og hugur manns. Notendaviðmótið er frábært og eiginlega betra en maður þorði að vona þrátt fyrir allt hæpið í kringum hann fyrir útgáfu. Þó svo síminn sé tveimur kynslóðum á undan öðrum lófatölvum þá er maður fljótur að auka kröfurnar og finnur strax nokkra “galla” sem má laga. Nánar að því síðar. Síminn sjálfur Síminn er 115 mm x 61 mm x 11,6 mm og vegur um 135 grömm. Smíði hans er einhver sú fallegasta á raftæki sem maður hefur séð. Glæsilegur frágangur, efni og útlit. Uppsetning: Ágætlega gekk að setja upp símann, það tók rétt rúma klukkustund að opna (hakka) hann og var farið eftir leiðbeiningum á nokkrum vefsíðum (firmware 1.0.2). Síminn var syncaður í gegnum iTunes 7.4.1 og komu allir contactar, dagatal og bookmarks inn eins og skot. Setja þarf inn lykilorðið á þráðlausa netið og stilla APN-ið í GPRS-inu (gprs.is hjá Vodafone). Sniðugt væri ef hljóðið sem kemur þegar nýr email kemur komi bara milli 08 og 22 á daginn !! Síminn kom hlaðinn að hluta en annars er hann hlaðinn með USB snúru annaðhvort í gegnum tölvutenginu eða beint í spennubreyti sem fylgdi með. Batteríið dugaði nú ekki lengi fyrstu dagana, enda verið að nota símann nánast stanslaust allan daginn Keppnin í sjónvarpsbransanum snýst nú einna helst um að koma með sem þynnstan skjáinn á markað. Nú var Hitachi að kynna nýjan skjá á CEATEC sýningunni. Skjárinn er í HD upplausn og 32″ og stóru fréttirnar eru: hann er 18,8mm þykkur!!
Nú hefur gítarframleiðandinn Gibson loksins komið með sjálfstillandi gítar á markaðinn. Nokkrar hljómsveitir og trúbadorar á þjóðhátíð ættu að hoppa hæð sína af spenningi (sennilega vita þeir þó ekki að þeir séu falskir). Bang & Olufsen hefur sýnt nýjan síma sem kemur á markað í nóvember. Hann kallast Serenata og fyrir lengra komna. Í honum er alvöru hátalari og ICEPower magnari sem gefur þessi tæki alvöru sánd. Hægt er að opna stand undir honum þegar maður vill hlusta á græjurnar. Þegar maður vill ganga enn lengra er [...] | ||
51 fyrirspurnir. 0.774 sekúndur. | ||