Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Óvenjulegur

Þar sem okkur er ekki kunnugt um íslenskt orð yfir alþjóðlega orðið “hybrid” notum við það bara eins það sé íslenskt (sendið endilega inn þýðingu).

Einhver óánægður starfsmaður hefur eytt hugarorku sinni einn daginn í eitthvað þarflegt. Hnúajárn og kaffibolli smellt saman í eitt og sama tækið getur verið eitthvað sem maður þyrfti að nota í eldheitum samræðum á kaffistofunni einn daginn…

kaffibolli

Lesa meira af Óvenjulegur “hybrid”

Fyndið einu sinni

Það væri gaman að mæta með svona græju og slá í gegn hjá fjölskyldunni. Líklega færi tækið samt inní geymslu þann sama dag og svo beint í Sorpu nokkrum árum seinna. Dough-Nu-Matic heitir gripurinn og framleiðir fyrir þig smá-kleinuhringi.

Þú setur deig inn í trektina og út koma gómsætir kleinuhringir sem eru búnir að [...]

Alvöru LCD tæki

Gæðin á LCD og Plasma tækjum geta verið mjög mismunandi. Upplausnin og skerpan er stundum ekkert skárri en í gömlu túbutæki. Samsung hefur sett á markað flott tæki sem er samkeppnishæft í verði. LE46F86BD er vörumerkið, kannski ekki rosalega gott nafn en bíðið bara eftir upptalningunni í innihaldinu.

46 tommur 1920 x 1080 = [...]

Nýji ameríski riffillinn

Hlutir.is eru ekki bara með síma ef einhver skyldi halda það. Nú er það nýjasti árásarriffillinn sem bandaríski herinn hefur ákveðið að taka í sína notkun. Græjan heitir XM8 og hefur verið í hönnun í mörg ár og er í raun og veru 4 mismunandi rifflar í einu tæki. Riffillinn er aðeins um 2,7 kg og getur hlaupið verið frá 22 og uppí 49 sentimetrar. Hægt er að skjóta allt að 750 skotum á mínútu og er laser mið með rauðum punkti.
Á myndunum sem fylgja má sjá útfærslurnar þar sem meðal annars má sjá handsprengjuvörpu festa neðan á hlaupið.

xm83

Lesa meira af Nýji ameríski riffillinn

Armbandssími

Nú eru allir hreinlega að veðja á símasölu. Kóreska fyrirtækið Hyundai sem er heimþekkt fyrir glæsilega sportbíla og gámflutningaskip er komið í símabransann. Nýji síminn heitir Hyundai W-100 og er með 1,3 megapixla myndavél, 176 x 144 snertiskjá, Bluetooth, Ensku og kínversku stýrikerfi, MP3 spilara og rauf fyrir microSD kort. Nú bíðum við bara eftir verðinu.

w100

Lesa meira af Armbandssími

Nokia hannar snertiskjá

Nokia sýndi í dag nýjan síma sem kallast S60 og er með snertiskjá sem er alls ekki ólíkur iPhone. Síminn mun geta notað forrit frá 3.ju aðilum og svo er í honum fjarlægðarskynjari og ljósnemi. Einnig mun hann geta spilað Flash Video í vafranum. Nánari upplýsingar síðar. Áætluð útgáfa er árið 2008.

[...]

Blaðsíða 2 af 3123