
iPhone var formlega kynntur til sögunnar í janúar síðastliðnum á Macworld sýningunni í San Fransisco eftir að hafa verið slúðrað um hann í 3 ár. Slúðrið hélt áfram og óhætt er að segja að yfirstaðin er einhver magnaðasta markaðssetning seinni ára. 270.000 stykki seldust fyrsta sólarhringinn í USA í lok júní og síminn er væntanlegur útfyrir Bandaríkin á næstu vikum.
Við hjá Hlutir.is erum búnir að vera með iPhone í notkun núna í heila viku. Síminn var prófaður fram og til baka og til að gera langa sögu stutta þá er niðurstaðan: frábær græja.
iPhone er gjörsamlega eins og hugur manns. Notendaviðmótið er frábært og eiginlega betra en maður þorði að vona þrátt fyrir allt hæpið í kringum hann fyrir útgáfu. Þó svo síminn sé tveimur kynslóðum á undan öðrum lófatölvum þá er maður fljótur að auka kröfurnar og finnur strax nokkra “galla” sem má laga. Nánar að því síðar.
Síminn sjálfur
Síminn er 115 mm x 61 mm x 11,6 mm og vegur um 135 grömm. Smíði hans er einhver sú fallegasta á raftæki sem maður hefur séð. Glæsilegur frágangur, efni og útlit.
Innbyggt minni er 8Gb (einnig hægt að fá 4 GBb og er hann með Li-Ion batteríi. í honum er Quad band, GPRS, EDGE, Bluetooth, WiFi (með VPN möguleika), Java, Safari vafri, YouTube spilari, iPod, Mail tölvupóstur, reiknivél, dagatal, myndasafn, myndavél, Google earth landakort (veftengt) og Fjöltóna- og rauntónahringing ásamt nokkrum smærri forritum. Skjárinn er snertiskjár og upplausnin er 160punktar á hverja tommu. 3,5 tommur horn í horn og upplausin er 480×320.
Uppsetning:
Ágætlega gekk að setja upp símann, það tók rétt rúma klukkustund að opna (hakka) hann og var farið eftir leiðbeiningum á nokkrum vefsíðum (firmware 1.0.2). Síminn var syncaður í gegnum iTunes 7.4.1 og komu allir contactar, dagatal og bookmarks inn eins og skot.
Notast var við PowerBook með 1ghz örgjörva og USB 1 porti. Í póstinum voru 4 IMAP accountar og komu þeir einnig inn. Pósturinn var stilltur þannig að hann tékkar á pósti á 30 mínútna fresti (þú velur milli 15, 30 eða 60 mín) og notar hann WiFi ef það er til staðar en annars notar hann EDGE.
Setja þarf inn lykilorðið á þráðlausa netið og stilla APN-ið í GPRS-inu (gprs.is hjá Vodafone).
Sniðugt væri ef hljóðið sem kemur þegar nýr email kemur komi bara milli 08 og 22 á daginn !!
Síminn kom hlaðinn að hluta en annars er hann hlaðinn með USB snúru annaðhvort í gegnum tölvutenginu eða beint í spennubreyti sem fylgdi með. Batteríið dugaði nú ekki lengi fyrstu dagana, enda verið að nota símann nánast stanslaust allan daginn
Nú er batteríið farið að duga í 2 daga.
Virkni:
Snertiskjárinn á iPhone er það svalasta í heimi. Hann lætur skrunhjólið hjá Blackberry líta út fyrir að vera 25 ára gamalt. Með einum putta getur þú flett í gegnum atriði á skjánum og með tveimur puttum getur þú súmmað inn og út, bæði í myndum, vefsíðum og tölvupósti. Þetta er í raun og veru mús með skrunhjól og súmmtakka allt blandað saman í eitt miklu flottara tæki. Í skjánum er nálægðarskynjari sem slekkur á skjánum þegar hann er 2 cm frá eyranu á þér svo þú snertir ekki óvart einhvern takka. Einnig er stöðuskynjari sem áttar sig á hvernig tækið snýr og færir myndina sjálfkrafa úr Landscape í portrait þegar við á.
Síminn:
Síminn sjálfur er náttúrulega alger snilld. Maður getur valið úr öllum í addressubókinni og einfaldlega “snert” þá til að hringja. Svo er flýtivalmynd þar sem hægt er að velja uppáhaldscontacta, nýlegar hringingar, alla contacta, númeravalmyndina og talhólfið. Talhólfið reyndar virkaði ekki en ég hef hvort sem er aldrei notað talhólf.
Gallinn er að síminn er svo þunnur að frekar óþægilegt getur verið að halda á honum lengi uppvið eyrað. Hinn gallinn er að síminn hitnar talsvert þegar maður er búinn að vera einhverjar 10 mínútur á spjalli. Lausnin er að nota heyrnatólin sem fylgja með.
Mjög flott er reyndar hvernig hann slekkur á skjánum á meðan þú talar í símann, en um leið og þú hreyfir símann snögglega þá kemur skjárinn upp í smá stund aftur.
SMS:
SMS viðmótið er stórskemmtilegt og er með útlit svipað og Adium spjall forritið. Þetta er hvetjandi til að senda mikið af skilaboðum líkt og maður sé á MSN og gerir það hluthafana í símfyrirtækjunum ánægða. Ekki er MMS myndskilboð í símanum
Vafrinn:
Safari vafrinn í iPhone-inum er önnur snilldarlausnin frá Apple. Váá, hvar á maður að byrja. Auðvelt er að skoða nánast hverja heimasíðu sem er. Súmmið er svo yndislegt að maður er enn að skoða heimasíður í símanum þó svo að fartölvan sé við hendina. Hann er einnig snjall að átta sig á login síðum og fleira slíkt. Hægt er að skoða fleiri en eina síðu í einu með nýrri útgáfu af Tabs. Reyndar er ekki hægt að skoða Flash, en maður hinkrar eftir uppfærslu.
Pósturinn:
Mail forritið er náttúrulega svipað og í Makkanum. Virkar vel og er þægilegt hvernig breytingarnar fyrir smáskjáinn koma út. Í okkar tilviki sync-uðum við 4 IMAP pósta við fartölvu og komu þeir allir strax inn og ekkert vesen. Manni dettur ekkert í hug sem gæti bætt þetta.
Til að prufa settum við upp nýjan póst með addressu sem var ný, og reyndist það heldur ekkert mál. Ekki var farið í að prófa póstinn frá stóru erlendu fyrirtækjunum, en pósturinn frá Yahoo er víst “ýtt” í símann, þannig að ekki spyr síminn þjóninn um hvort nýr póstur sé kominn, heldur sendir þjónninn póstinn á símann. Búast má við þessari þjónustu hjá öðrum fyrirtækjum fljótlega.
iCal dagatalið:
Fyrir okkur sem nota iCal daglega er þetta frábært viðmót. Fyrir þá sem nota Outlook er sagt að þetti virki vel en það var ekki prófað.
YouTube:
Maður sér vefinn í nýju ljósi með YouTube forritinu. Með því að smella á forritið sér maður flotta vasaútgáfu af valmyndinni og þegar myndbandið er valið birtist það yfir allan skjáinn á hlið þannig að maður sér stóra og skýra mynd.
Maps:
Þarf að segja eitthvað meira. Maður er einfaldlega með veröldina í vasanum og súmmið á skjánum nýtur sín rosalega vel.
Myndir / Myndavél:
iPhone er með 2mp myndavél sem er ágæt. Ekkert flass er á henni en myndin samt þokkalega góð, jafnvel við léleg birtuskilyrði. Einnig er hægt að setja myndir af tölvunni inná símann og synca þau saman. T.d. er hægt að synca við iPhoto eða aðrar myndamöppur.
Myndvinnslan í símanum er líka mjög góð. Hægt er að súmma inn á myndir og croppa út andlit t.d. þegar fólk hringir í mann að maður sjái nú hver það er. Mjög flott er hvernig hægt er að snúa símanum og fá myndirnar í landscape eða portrait. Einnig er viðmótið við stjórntækin mjög þægilegt.
Hlutabréf:
Lítið forrit er um hlutabréf sem einhverjir þekkja úr Dashboard. Forritið og mjög flott og gerir akkúrat það sem þarf, gefur manni núvirði á hlutabréfum, sýnir breytingu innan dags í punktum og prósentum. Einnig er línurit yfir undanfarin misseri. Gallinn er að íslensk hlutabréf eru ekki enn komin á listann hjá Yahoo sem veitir þessa þjónustu.
Veðrið:
Veður forritið er svipað og hlutabréfaforritið. Það tengt Yahoo og eru flest krummaskuð á Íslandi þar inni. Forritð sýnir núverandi veður og hitastig ásamt spá fyrir næstu vikuna.
Klukkan:
Klukkan í símanum er nokkuð sniðug. Hún sýnir hvað klukkan er
og það í öllum tímabeltum.
Hún reyndar sýnir ekki hvað klukkan er þegar síminn er læstur og þarf að ýta á einhvern takka til að fá upp tímann. Annars er alltaf klukka efst fyrir miðju í öllum forritum.
Vekjaraklukkan er líka góð. Það tekur skamma stund að komast inní hana og svo er hægt að hafa nokkrar tímasetningar fyrirfram valdar svo maður verði enn fljótari að velja.
Einnig er flott skeiðklukka með hringjatímum og niðurteljari, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Reiknivél:
Reiknivélin er algjörlega einföld og fín.
Glósur:
Glósukerfið er kunnulegt úr Makkanum. Einfalt og þægilegt.

iPod:
Síðast en ekki síst er iPod-inn. Nýjasta stýrikerfið er hrikalega flott. Cover-flow og allt sem er best bara að prófa. Orðin fá því ekki líst.
Verð:
Síminn kostar $399 dollara í USA. Ágiskun er á 69.900 þegar hann er kominn formlega í búðir á Íslandi.
Verðið á niðurhali hjá Vodafone er:
| Almenn GPRS verðskráLýsing Mánaðargjald Innifalið Umframnotkun Almennt verð 0 kr. 0 MB 0,48 kr./kB GPRS 3 MB 390 kr. 3 MB 0,14 kr./kB GPRS 9 MB 990 kr. 9 MB 0,10 kr./kB GPRS 20 MB 1.590 kr. 20 MB 0,09 kr./kB GPRS 49 MB 2.400 kr. 49 MB 0,08 kr./kB |
og notkun okkar hefur verið um 0.5 mb á dag undanfarna daga, þannig að það borgar sig fyrir mann að fá sér 49mb á 2.400 á mánuði. Þetta er miðað við að pósturinn er stilltur þannig að hann athugar stöðuna 1 sinni á klst og oftast er hann í sambandi við þráðlaust net (sem kostar ekkert). Í símanum er mælir á GPRS notkun.
Sniðugt væri ef hægt væri að láta póstinn athuga stöðuna á 15 mín fresti ef það er WiFi samband annars á 60 mín fresti.
Möguleikar og virkni:
Bluetooth er hægt að tengja við þráðlaus eyrnatól.
Takkar utaná símanum eru aðeins 3. Einn hækkar og lækkar hringingu og hljóð. Einn slekkur og kveikir á símanum eða setur skjáinn í biðstöðu. Sá þriðji eð silent flipi sem er frábær nýjung.
Heyrnartólin eru líka mjög góð. Gott sánd, góður míkrafónn og allt sem við var að búast.
Kostir:
Gallar:
Niðurstaða:
Ekkert skrítið að Apple hafi selt yfir milljón síma í USA á tæpum mánuði. Það er hreinlega upplifun að nota þetta tæki og ekki þetta 3 klst bliss sem fylgir flestum tækjum heldur virðist það ætla að vara í nokkrar vikur.
Einkunn:
5 af 5

Kom ekki út hugbúnaðaruppfærslu frá Apple um daginn sem gerði það að verkum að þeir símar sem hafa verið aflæstir yrðu „varanlega óvirkir“? Hefur þetta ekkert haft áhrif á ykkar síma?
Jú, það kom Firmware uppfærsla um daginn. Útgáfa 1.1.1 var gefin út og ekki er enn búið að hakka hana. Hægt er að færa símann niður í 1.0.2 svo hægt sé að hakka hann og nota á Íslandi. Upplýsingar á Google.
Þegar maður tengir símann við iTunes þarf maður að smella á “nei takk” í hvert skipti sem hún býðst til að uppfæra símann í 1.1.1
Hvernig er með að nálgast tölvupóst t.d. sem maður notar í vinnunni, ég nota t.d. Lotus Notes, get ég fengið þann póst beint í síman?
Btw. ég mæli ekkert sérstaklega með Lotus Notes, langt á eftir sinni samtíð!!!
Já, það ætti að vera hægt. Einhverjir hafa verið að nota forrit sem færa Lotus Notes gögn yfir í Outlook og svo þaðan yfir í iPhone-inn. Svo er verið að vinna í forritum fyrir beint sync…
Það eru til leikir og forrit frá þriðja aðila. Það er til dæmis búið að búa til nintendo emulator til spila gamla nintendo-leiki. Einnig er búið að búa til voice recorder, forrit til að lesa e-books og fullt af nýjum theme-um fyrir símann.
http://iphone.nullriver.com/beta/
Afsakið hversu seint þessi athugasemd kemur en er ekki einhver á Íslandi sem opnar síma – þá fyrir pening?
Jóhannes
Það er ekki mikið mál að opna símann ég var c.a 30 mín að opna minn og væri mun fljótari næst. Þú getur keypt forrit á 3500 kr og gert þetta sjálfur án þess að kunna neitt.
http://www.iphonesimfree.com/cgi-bin/iphonesimfree/engine.pl?page=home
http://iphone.unlock.no/
tekur 5 min að opna símann go þarft ekki að borga neitt!
er einhver herna sem gæti opnað iphone?