Nú hefur gítarframleiðandinn Gibson loksins komið með sjálfstillandi gítar á markaðinn. Nokkrar hljómsveitir og trúbadorar á þjóðhátíð ættu að hoppa hæð sína af spenningi (sennilega vita þeir þó ekki að þeir séu falskir).
Gítarinn er sem sagt með auka pickup undir strengjunum sem er eingöngu notaður til að stilla gítarana. Flókið tölvukerfi og reikniformúlur eru notaðar til að stilla strengina sjálfkrafa. Gítarinn stillist þó ekki jafnóðum heldur þarf að taka út takkann “Master control” til að stilla græjuna og tekur það aðeins örfáar sekúndur. Einnig er hægt að ákveða hann stilltan aðeins “fyrir utan” ef menn vilja. Þessi aukabúnaður kostar aðeins 58.500 krónur í USA.


Master control takkinn



Síðustu komment