Fallegt málefni

Zune spilarinn er nú til í takmarkaðri útgáfu. Spilarinn er bleikur og fer allt söluverðið í góðgerðarmál. Jebb, allt söluverðið. Microsoft ætlar með þessu að styrkja Susan G. Komen sjóðinn sem leitar að lausn við brjóstakrabbameini í konum. Málefnið er vissulega gott og fallegt og gjafmildi Microsoft manna er mikið, en mikið er spilarinn ljótur.

Zune spilarinn var svo sem ekki fallegur fyrir í hvaða lit sem er. Reyndar kom á markaðinn um daginn brún útgáfa af honum sem var afskaplega ljót og keppir við þann bleika um ljótustu útgáfuna.

Á einhver Zune spilara? Nennir eitthvað fyrirtæki að flytja þá inn til að selja?

bleikur zune

Comments are closed.