Alvöru LCD tæki

Gæðin á LCD og Plasma tækjum geta verið mjög mismunandi. Upplausnin og skerpan er stundum ekkert skárri en í gömlu túbutæki. Samsung hefur sett á markað flott tæki sem er samkeppnishæft í verði. LE46F86BD er vörumerkið, kannski ekki rosalega gott nafn en bíðið bara eftir upptalningunni í innihaldinu.

lcd

46 tommur
1920 x 1080 = full HD upplausn
1080p þéttni í 24 römmum á sek = Blu-ray í fullum gæðum
100Hz Motion Plus örgjörvi = fullkomnar hreyfimyndir
3 stykki af HDMI 1,3 raufum
nánast ósýnilegir hátalarar og gott sánd
snertitakkar á tækinu sjálfu til að hækka og lækka
Svart glansandi lúkk
+ allt hitt
Verð: 199.999 (í Bretlandi :(

Comments are closed.