Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Toyota komst 560 km á einum vetnistanki

Toyota hefur gefið út tilkynningu að þeir hafi náð að keyra vetnisbílinn FCHV 560 kílómetra leið án þess að fylla á tankinn. Ferðin var á milli Osaka og Tokyo í Japan og var meir’að segja kveikt á loftræstingunni allan tímann.

Samkvæmt tilkynningunni frá Toyota er FCHV bíllinn um 25% sparneytnari en fyrri útgáfa.

Ferðin er því lengsta ferð á vetnisbíl sem vitað er um en GM komust um 480 km fyrr á árinu.

fchv

Comments are closed.