Nýji síminn frá Sony-Ericsson er nokkuð nettur. Hann heitir W580i Walkman og er frekar kynþokkafullur. Hann opnast í rennu og er með 2 megapixla myndavél, videoupptöku og spilun, bluetooth 2.0 með A2DP, memory stick micro rauf, 4 banda síma, kaloríumæli (fyrir hlaupara) og það sem er allra best: Pac-man og Ms. Pac-man. Nú er bara að bíða eftir að hann komi á klakann.


Nýlegar athugasemdir