Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Rafmagn framleitt með sólargeislum á Spáni

Fleiri eru að hugsa um orkuframleiðslu en Íslendingar.

Reistur hefur verið fyrsti turninn af mörgum sem framleiðir rafmagn með sólarorku. Turninn er við borgina Sevilla á Spáni og framleiðir rafmagn sem á að duga 6000 heimilum fyrir orku eða um 11 megawött. Stefnan er að knýja öll 600.000 heimilin í Sevilla.

Turninn er 40 hæða hár og umhverfis hann eru 600 speglar sem beina geislum sólarinnar á turninn. Hver spegill er 120 fermetrar.

turn1

Í turninum eru vatnsleiðslur sem framleiða gufu þegar sólargeislarnir beinast á þær. Gufan er geymd í tönkum og svo látin knýja túrbínur sem framleiða rafmagn.

Eftir að sólin sest nær turninn að framleiða rafmagn í um 1 klst.

Rafmagnið er um 3 sinnum dýrara en annað rafmagn en búist er við skörpum kostnaðar minnkunum í náinni framtíð (fyrir utan kostnað af mengun hjá öðrum orkugjöfum).

Líklegra er að Sahara verði þakin svona turnum í framtíðinni en íslenska hálendið…

turn2

  1. Turninn er 115 metra hár og speglarnir eru úr stáli
  2. Móttakarinn er efst í turninum og breytir þar geislum í orku
  3. Gufan er geymd í tönkum og keyrir túrbínurnar

Comments are closed.