Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Fartölvutaska og sólarrafhlaða

Kannski ekki nýtt af nálinni en fróðlegt engu að síður. Dunhill hefur sett á markað tösku sem kostar um 100.000 kall íslenskar í útlöndum. Taskan er með innbyggðu batterí sem hleðst af sólarorku og svo þegar þú setur fartölvuna í töskuna, færist orkan úr innbyggða batteríinu yfir í tölvuna. Einnig er hægt að hlaða [...]

Draumurinn um flotta hátalara að rætast

Loksins er hægt að fá flotta hátalara!! Axelsson Design hefur kynnt til sögunnar geggjað flotta hátalara sem fást í 3 litum. Þeir kosta ekki nema 90 þúsund kall frá framleiðanda þannig að maður verður að kaupa sér par í öll herbergin í húsinu.

Hálfar klukkur

Fatahönnuðurinn Paul Smith er kominn með sína eigin úra línu. Afraksturinn er þessi glæsilega klukka sem mynnir mann einna helst á hraðamæli úr amerískum bíl frá sjötta ártug síðustu aldar. Úrið heitir PS20 og er úr stáli og með kristal yfir skífunni. Það er vatnshelt niðrá 50 metra dýpi og kostar tæpan 50 þúsund [...]

WiFi iPod stöð

Nú er komin á markað í Kóreu þessi sniðuga hleðslustöð fyrir iPod. Þú getur nú sett iPodinn í stöðina og hlaðið batteríið og tengt litla hátalara við stöðina. Einnig geturðu haft þráðlaus samskipti við iPodinn úr tölvunni þinni, sem sagt sett lög inná hann, spilað úr honum í græjunum þínum (ef þú ert með airport express) og þetta helsta…

Verðið er ekki komið á hreint þegar þetta er skrifað

.ipod dokk

Lesa meira af WiFi iPod stöð

Rafmagn framleitt með sólargeislum á Spáni

Fleiri eru að hugsa um orkuframleiðslu en Íslendingar.

Reistur hefur verið fyrsti turninn af mörgum sem framleiðir rafmagn með sólarorku. Turninn er við borgina Sevilla á Spáni og framleiðir rafmagn sem á að duga 6000 heimilum fyrir orku eða um 11 megawött. Stefnan er að knýja öll 600.000 heimilin í Sevilla.

Turninn er 40 hæða hár og umhverfis hann eru 600 speglar sem beina geislum sólarinnar á turninn. Hver spegill er 120 fermetrar.

turn1

Í turninum eru vatnsleiðslur sem framleiða gufu þegar sólargeislarnir beinast á þær. Gufan er geymd í tönkum og svo látin knýja túrbínur sem framleiða rafmagn.

Eftir að sólin sest nær turninn að framleiða rafmagn í um 1 klst.

Lesa meira af Rafmagn framleitt með sólargeislum á Spáni

Plötusnúður í útileguna í sumar

Ef þú vilt slá í gegn í útilegunni í sumar og kannt ekki að spila á kassagítar þá er komin lausn fyrir þig. Lítið fyrirtæki sem heitir Tonicum hefur sett á markað ferða DJ spilara. Tækið er með 120GB minni, crossfader ogtveimur 3,5mm stereo jack plöggum. Svo er aðalmálið tveir fjölnota snertifletir þar sem tempóinu er stjórnað, scratzað og allt. Svo er skjár í hvorum plötuspilara fyrir sig og þar er flett uppí lagasafninu. Hægt er að tengja hann bæði við Mac og PC. Tækið kallast Pacemaker og er ekki komið í almenna sölu á Íslandi, svo við vitum.
pm2

fleiri myndir hér fyrir neðan

Lesa meira af Plötusnúður í útileguna í sumar

Blaðsíða 1 af 212