Sony er hugsanlega að komast á gott skrið. Þeir eru búnir að kynna tölvu með SSD disk og kynntu í gær alvöru videocameru með svipaðri tækni. Tölvan nýja heitir Sony VAIO G1 og er nú hægt að fá með 32 GB SSD disk sem gerir tölvuna að léttustu 12.1″ fartölvu í heimi. Aðeins 850 grömm !!!. Auk þess er hún hljóðlaus, endingargóð og hrikalega hröð. Endingartíminn á rafhlöðunni eykst gríðarlega og er nú 6,5 klst.
SSD diskurinn er seldur sem aukabúnaður í tölvuna og er hún um 40þúsund dýrari með honum heldur en venjulegum 40GB disk. Sú tölva er þó aðeins 950 grömm, batteríið dugar í 6 klst og kostar 182.000 krónur í USA og myndi líklega kosta í kringum 250.000 kallinn hér ef einhver vildi selja Sony tölvur.
Miklar sögusagnir hafa gengið undanfarið að Apple muni setja á markað 12 eða 13″ fartölvu með SSD disk á næstunni.

Síðustu komment