Þó svo Philips hafi ekki gert garðinn frægan á fartölvusviðinu hingað til eru þeir mættir með nýjung. Fartölva með skjánum á háls sem gerir manni kleyft að færa skjáinn. Að öðru leiti er tölvan nokkuð venjuleg, 1.73GHz Core Duo U2500 örgjörvi, 1GB í vinnsluminni, 100GB harður diskur, DVD combo drif, vefmyndavél, Vista osfrv.
Skjárinn er þó einungis 12.1 tommu beiðtjaldsskjár, spurning hvort það sé nóg til að gera Philips að öflugum aðila á þessum mettaða markaði. Hugmyndin er sniðug en líklega ekki nóg… 

Síðustu komment