Tölvurisinn Google hefur lengi verið grunaður um að vera með síma í þróun. Bensíni var helt á eld sögusagna um þetta þegar tævansk tækniblogg sagði að verið væri að framleiða prufueintök þar í landi. Þeir segja að síminn komi á markað í lok þessa árs og verði kominn útum allan heim á árinu 2008. Síminn er með 3 kynslóðar móðurborð frá Texas Instruments með EDGE og svo auðvitað G-Mail og Google Maps, þó er hann ekki með GPS. Nú er talað um að Orange farsímafyrirtækið muni selja hann í Evrópu.
Spurning hvort þessar sögusagnir séu sannar??

Nýlegar athugasemdir