Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Blackberry 8700v prófaður

Hlutir.is fengu um daginn Blackberry Pearl 8700v til prófunar. Tækið var prófað með ” BlackBerry Internet Service (BIS) sem er fyrir einstaklinga, einyrkja og minni fyrirtæki sem reka ekki eigin póstþjón, hafa fáa notendur eða þurfa einfaldlega ekki annað.
BIS veitir aðgang að tölvupósti, tengiliðalista, dagbók, aðgerðarlista og verkefnalista. Tölvupóstur berst í tækið á 15 mínútna fresti og símtækið lætur þig vita ef nýr póstur er í hólfinu með rauðu ljósi.” eins og segir á heimasíðu Vodafone.

Síminn sjálfur

8700Síminn er 110mm x 69,5mm x 19,5mm og vegur um 134gr. Innbyggt minni er 64mb og er hann með Li-Ion batteríi. í honum er Quad band, GPRS, EDGE, Bluetooth, USB tengi, MMS, Java, Vafri, Fjöltóna- og rauntónahringing.

Uppsetning:

Ágætlega gekk að setja upp símann, við settum upp tölvupóstinn í versluninni áður en hann var afhentur og virkar hann ágætega. Pósturinn er sóttur á 15 mínútna fresti og hægt er að stilla hvort það komi hljóð, víbringur eða ljós þegar nýr póstur kemur.
Þemað á valmyndum (theme) var nokkuð flatt og leiðinlegt í upphafi þannig að valið var að nota BB-Dimenson-icon sem var talsvert flottara.

Síminn er hlaðinn með hleðslutæki sem er stungið í USB raufina. Einnig hleðst hann þegar verið er að synca með USB snúrunni. Batteríið dugar í 4-6 daga.

Við prófuðum að tengja símann við Makka og gekk það ágætlega. Það þurfti að installa Samstillingarforriti (sync) af heimasíðu Blackberry en það var lítið mál. Address bókin kom fljótt inn en einhver vandamál komu upp með Dagatalið sem ennþá á eftir að leysa. Tengingin við PC tölvu var frekar auðvelt og tók um 15 mínútur.
8700b

Virkni:

Síminn sjálfur virkar ágætlega. Auðvelt er að leita í símaskránni og þægilegt að hringja og svara.
Vafrinn er ekki góður. Hægt er að redda sér ef maður þarf nauðsynlega að kíkja á einhverja heimasíðu.
SMS og email. SMS og email virka ágætlega fyrir utan íslensku stafinu. Til að finna íslenska stafi þarf að halda niðri staf á lyklaborðinu og scrolla svo hjólinu á hliðinni. Aðra stafi er maður mjög fljótur að slá inn og maður er mjög fljótur að ná tökum á QWERTY lyklaborðinu. Annar galli við SMS og email er að þau blandast saman og maður sér engan mun á þeim. T.d. þegar maður svarar skeyti veit maður ekki hvort maður var að senda SMS eða email.
Vodafone LIVE var ekki prófið mikið. Einhverjar fréttir sáust þar og voru þær snöggar að koma upp og snyrtilegar. Aðrar fréttir kostaði allt að 99 krónur að skoða og við tímdum því ekki :)
Vekjaraklukkan er rosalega fullkomin, eiginlega of fullkomin. Maður þarf að lesa yfir alla möguleikana nokkrum sinnum svo hún hringi örugglega morguninn eftir. Betra væri að hafa hana einfalda.
Einn leikur fylgir með, það er BrickBreaker sem er ágætis afþreying en skrunhjólið er ekki gott til að stýra í leikjum og eyðileggur það því ánægjuna.

Forsíðan er frekar léleg á símanum. Engar upplýsingar koma þar fram heldur eingöngu íkon yfir hina ýmsu hluti sem sjaldan eru notaðir. Allt of mikið er af íkonum og þarf maður oft að skrolla heilmikið til að leita að þeim möguleika sem til stendur að nota. Betri væri ef síminn myndi sína yfirlit yfir nýjustu pósta og síðustu símtöl á forsíðunni og svo myndi maður velja stjórnborðið eftir það.
Verð:

Síminn kostar 49.900 hjá Vodfone og notkun kostar 1850 krónur á mánuði óháð gagnamagni. Innifalið er leðurhulstur og handfrjáls búnaður.

Farið var með símann til Danmerkur og virkaði hann ágætlega þar. Emailar komu og hægt var að senda þá líka. Upplýsingar um verð frá Vodafone voru þannig að það kostar 4 krónur hvert Kílóbit. það segir manni nú lítið og fróðlegt verður að sjá reikninginn um næstu mánaðarmót.

Kostir:

  • Stór skjár

Gallar:

  • Batterískvarðinn ekki nógu nákvæmur. Sýnir 1/4 af batterí og svo alltíeinu er hann tómur án hljóðmerkja.
  • Íslenskir stafir, flókið að fá þá upp
  • Skrunhjólið. Annaðhvort elskar þú það eða hatar.
  • Of mikið af íkonum á valmyndinni.
  • SMS og tölvupóstar koma í blandast saman.

Niðurstaða:

Síminn er frekar leiðinlegur þegar á heildina er litið. Líklega er betra að nota venjulegan síma með email þó það sé erfitt að skrifa langa pósta.

Comments are closed.