Amerískir piparsveinar hljóta að vera yfir sig spenntir um þessar mundir. Nýji Budweiser kælirinn er eitthvað sem þá alla langar í. Græjan kostar tæpar 300.000 íslenskar krónur í Ameríku og getur hún haldið 64 dósum af bjór ísköldum. Hægt er að hafa bjórinn frían eða stilla kælinn þannig að það kosti einhverja nokkra smápeninga að svala þorsta sínum.
Þetta væri líka sniðugt fyrir þá sem eiga bílskúr og eyða miklum tíma í að bóna eða gera við dótið í bílskúrnum.
Kannski er útlitið ekki það nýtískulegasta en það er ekki aðalatriðið, heldur það að geta sagt frá því að eiga sinn eigin bjórsjálfsala.

Síðustu komment