Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

100 milljón iPod seldir

Apple tilkynnti í dag að þeir seldu 100 milljónasta iPodinn í dag. Sagan spannar 5 og hálft ár en fyrsti iPodinn kom í búðir í nóvember 2001. 5 kynslóðir að baki og árangurinn gríðarlegur. Steve Jobs, forstjóri Apple, þakkaði fyrir sig í dag og sagði að iPod hafi breytt tónlistarheiminum, bæði hvað varðar hlustun og dreifingu.

Um 4000 aukahlutir eru nú fáanlegir fyrir iPod og 70% af amerískum bílum bjóða uppá iPod tengi í 2008 árgerð. Í iTunes versluninni eru nú rúmlega 5 milljón lög til sölu en samtals hafa selst um 2.5 milljarðar laga.

Til hamingju með daginn Apple.

ipodfjosk

Svona hefur iPodinn þróast frá árinu 2001.

2 comments to 100 milljón iPod seldir