Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Ertu í góðum gír?

Nú er kominn tími til að pimpa aðeins upp bílinn sinn. Fyrirtækið Indy-Cator hefur sett á markað flottan gírhnúa sem sínir í hvaða gír maður er í á LCD skjá. Þessir snillingar segja að þetta auki öryggi í akstri og geti sparað bensíneyðslu um allt að 15%, hvernig sem þeir reikna það nú út…

[...]

loksins loksins

Á hverjum degi vakna ég og hugsa af hverju eru hækjur alltaf svona ljótar og með engan frumleika.

Nú eru þessar líflegu,frumlegu,fallegu og litríku hækjur framleiddar.

Fartölva með langan háls

Þó svo Philips hafi ekki gert garðinn frægan á fartölvusviðinu hingað til eru þeir mættir með nýjung. Fartölva með skjánum á háls sem gerir manni kleyft að færa skjáinn. Að öðru leiti er tölvan nokkuð venjuleg, 1.73GHz Core Duo U2500 örgjörvi, 1GB í vinnsluminni, 100GB harður diskur, DVD combo drif, vefmyndavél, Vista osfrv.

Skjárinn [...]

flott bluetooth heyrnatól

Mjög lítil heyrnatól sem notast við bluetooth eða blátanna tækni.

Þessi einstaklega flott hönnuðu og einföldu þráðlausu heyrnatól eru hljóðnemi og hátalari.

Svo þegar þú gengur niður götuna talandi í síman munu allir halda að þú ert að tala við sjálfan þig

Tækið er til í mismunandi stærðum

En hérna er mynd af [...]

Er Google að koma með síma á markað?

Tölvurisinn Google hefur lengi verið grunaður um að vera með síma í þróun. Bensíni var helt á eld sögusagna um þetta þegar tævansk tækniblogg sagði að verið væri að framleiða prufueintök þar í landi. Þeir segja að síminn komi á markað í lok þessa árs og verði kominn útum allan heim á árinu 2008. [...]

Blackberry 8700v prófaður

Hlutir.is fengu um daginn Blackberry Pearl 8700v til prófunar. Tækið var prófað með ” BlackBerry Internet Service (BIS) sem er fyrir einstaklinga, einyrkja og minni fyrirtæki sem reka ekki eigin póstþjón, hafa fáa notendur eða þurfa einfaldlega ekki annað.
BIS veitir aðgang að tölvupósti, tengiliðalista, dagbók, aðgerðarlista og verkefnalista. Tölvupóstur berst í tækið á 15 mínútna fresti og símtækið lætur þig vita ef nýr póstur er í hólfinu með rauðu ljósi.” eins og segir á heimasíðu Vodafone.

Síminn sjálfur

8700Síminn er 110mm x 69,5mm x 19,5mm og vegur um 134gr. Innbyggt minni er 64mb og er hann með Li-Ion batteríi. í honum er Quad band, GPRS, EDGE, Bluetooth, USB tengi, MMS, Java, Vafri, Fjöltóna- og rauntónahringing.

Uppsetning:

Ágætlega gekk að setja upp símann, við settum upp tölvupóstinn í versluninni áður en hann var afhentur og virkar hann ágætega. Pósturinn er sóttur á 15 mínútna fresti og hægt er að stilla hvort það komi hljóð, víbringur eða ljós þegar nýr póstur kemur.
Þemað á valmyndum (theme) var nokkuð flatt og leiðinlegt í upphafi þannig að valið var að nota BB-Dimenson-icon sem var talsvert flottara.

Síminn er hlaðinn með hleðslutæki sem er stungið í USB raufina. Einnig hleðst hann þegar verið er að synca með USB snúrunni. Batteríið dugar í 4-6 daga.
Lesa meira af Blackberry 8700v prófaður

Blaðsíða 1 af 41234