H.264 þjöppunarstaðallinn sem t.d. Apple notar í iTunes er að verða vinsæll. Sanyo var að kynna nýja upptökuvél sem tekur upp beint á þetta form á harðan disk eða kort. Xacti CG65 heitir vélin og er með byssu-gripi og nýjum örgjörva sem heitir Pure Fourth III. Einnig eru í vélinni stöðugleikavörn og 6 megapixel CCD með 5x súmmi á linsunni. Vélin tekur þá 6 tíma af efni á 8GB kort í hæstu gæðum sem eru (640 x 480, 30 rammar á sek, 3Mb á sek).
Vélin fer í almenna sölu í Japan í apríl og kostar um 30 þúsund kall.


Hmm, ég á nú eldri týpu af nákvæmlega þessarri vél. Xacti C5. Hún er líka með 640×480 videoupplausn í h.264 og tekur ljósmyndir í 5 megapixla upplaus. Þetta er engin nýýýýýjuuuuuung!!!! (bara fæst ekki á Íslandi)