Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Háskólanemar hafa ekkert betra að gera

Krakkarnir í MIT háskólanum hafa verið í vandræðum með að eyða tímanum uppá síðkastið. Eftir að hafa horft á stórmyndina Talladega nights nokkrum sinnum, datt einhverjum snillingnum í hug að skapa verkfræðistórvirkið sem rætt er um í myndinni en aldrei sýnt. Drengirnari heita Chris Vogt og Schuyler Senft-Grupp og eru langt komnir [...]

Endurkoma Commodore á tölvumarkaðinn

Þeir sem eru orðnir þrítugir ættu að muna eftir Commodore 64 sem var uppá sitt besta á níunda áratug síðustu aldar.c64 Velgengnin var þvílík að þetta er söluhæsta tölva í heiminum enn þann dag í dag (sama vörunúmer). Það seldust um 17 milljón eintök frá 1982 til 1994.Nú ætla þeir að koma sterkir tilbaka og kynna leikja PC vél sem á að vera það besta sem hægt er að finna fyrir leikjaspilara. Kynningin verður á CeBIT sýningunni 15 mars n.k. og er óhætt að segja að spennan sé farin að magnast….

http://commodoregaming.com/

Nokkrar upplýsingar um C64:

Örgjörvinn var MOS Technology 6510 og var hraðinn 0.99 MHz. Vinnsluminnið var 64-KB. Um 10.000 forrit voru seld fyrir C64, bæði skrifstofutól og leikir. Hægt var að tengja tölvuna beint við sjónvarp og flestir leikir voru spilaðir af kassettum.

Lesa meira af Endurkoma Commodore á tölvumarkaðinn

Benz sem eyðir 5,4 lítrum á hundraðið

Mercedes-Bens ætlar að frumsýna umhverfisvænan hugmyndabíl á bílasýningunni í Genf síðar í mánuðinum. Bíllinn er 170 hestöfl og togar 400 Nm og eyðslan er eins og fyrr segir um 5,4 lítrar á hundraðið. Bíllinn kallast Vision C 200 Bluetec.

Bíllinn stenst staðalinn EURO 6 sem tekur gildi árið 2015. Allir Diesel bílar frá Benz [...]

Old school stýripinni

Stundum getur maður fengið krampa í þumalputtana þegar maður er búinn að vera í Playstation í nokkra klukkutíma. Maður þessum stýripinna er hægt að hvíla sig aðeins í þumalputtanum. Þetta er líka svolítið flassbakk í gömlu leikjasalina. Alvöru stýripinni sem hægt er að þjösnast á og slá hressilega á takkana þegar maður er í [...]

Blaðsíða 3 af 3123