Hlutir.is

Græjublogg Íslands

 

Nýr Bentley

Þar sem miklar hækkanir hafa orðið á hlutabréfum uppá síðkastið er spurning hvort einhver hér á landi hafi efni á svona græju? Markhópurinn er reyndar aðallega kóngar, prinsar og olíufurstar en það er séns að einn eða tveir bílar verði seldir til almúgans þar sem alls 550 bílar verða framleiddir. Bentley Brooklands heitir hann og á hann ættir sínar að rekja til ársins 1920.

Vélin er sú kraftmesta sem Bentley hefur nokkurntíma framleitt. V8, 530 hestöfl og 1050 Nm tog ná þeir úr 6.75 lítra tveggja túrbínu vel tömdu villidýri.  Gírkassinn er 6 gíra.

Frágangur og hönnun eru sem fyrr aðalsmerki Bentley. Þessi Coupe bíll á að vera það sem þeir kalla heimsklassi.

8

Kannski er líklegra að maður sjái þennan bíl í rappmyndbandi á MTV heldur en í Kringlunni.

 brooklands

Bíllinn kemur á 20″ álfelgum

1920

Hér má sjá þróunina á Brooklands-inum frá því á þriðja áratug síðustu aldar

bentley

aftursæti

Lítur út fyrir að vera þægilegt að koma sér fyrir í handsaumuðu leðrinu.
innretting

Glæsileg innrétting

Comments are closed.